Íslenskur karlmaður lést af völdum Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins 1. nóvember. Þetta kemur fram í skriflegu svari landlæknis við fyrirspurn fréttastofu þar sem staðfest er að dánarvottorð hafi borist embættinu þar sem sú dánarorsök er staðfest.Sjúkdómurinn er afar sjaldgæfur, til í nokkrum mismunandi gerðum, og tilheyrir sama flokki og riðuveiki í dýrum. Sóttvarnalæknir segir í sérstöku svari að hvorki hafi borist greiningar um sjúkdóminn né klínísk tilkynning.Samkvæmt upplýsingum úr farsóttarskrá hefur Creutzfeldt-Jakob greinst þrisvar áður hér á landi, árin 2006, 2020 og 2023 og þrjú andlát af hans völdum síðan 1996. Það fyrsta árið 1997, annað 2007 og það þriðja 2022.Orsök sjúkdómsins er smitefnið príon, afbrigðilegt prótín sem umbreytir eðlilegum prótínum í afmyndað form. Creutzfeldt-Ja