Heilbrigðiseftirliti Suðurlands barst ábending nýverið vegna mögulegrar veggjalúsar á gistiheimili.Starfsmenn eftirlitsins fóru á staðinn og smit fannst í fjórum herbergjum.Meindýraeyðir hefur ekki staðfest að aðgerðir hafi tekist og herbergin eru því enn lokuð gestum. SKIPTIR MIKLU MÁLI AÐ REKSTRARAÐILI BREGÐIST RÉTT VIÐ Sigrún Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Hún segir að forvarnir hafi strax farið í gang og rekstraraðili gistihússins fékk meindýraeyði til að útrýma lúsinni.Herbergin voru hituð í yfir sextíu gráður og eru enn lokuð gestum.„Og síðan er verið að bíða eftir aftur að meindýraeyðir staðfesti að aðgerðirnar hafi náð fullnægjandi árangri.“Samkvæmt reglugerð er meindýraeyðum skylt að tilkynna um tilfelli veggjalúsa og láta vita innan þriggja