Landsréttur hefur staðfest sakfellingu yfir manni í Héraðsdómi fyrir stórfelld brot í nánu sambandi. Í dómnum segir að hann hafi yfir nokkurra ára tímabil vegið að lífi, heilsu og velferð fyrrverandi eiginkonu sinnar og dætra þeirra tveggja og beitt þær líkamlegu og andlegu ofbeldi. Stytti Landsréttur refsitímann og er manninum gert að sæta átján mánaða fangelsi í stað tveggja og hálfs árs dóms sem hann hlaut í héraði, eða ári skemur.