Salan á skipafyrirtækinu Samskipum til spænsks fyrirtækis vakti mikla athygli fyrir skömmu. Með þessari sölu lýkur rúmlega 30 ára eignarhaldi Ólafs Ólafssonar fjárfestis í þessu skipafyrirtæki sem hann hefur verið kenndur við í áratugi. Sonur Ólafs og nafni, Ólafur Örn Ólafsson, heldur hins vegar áfram sem forstjóri Samskipa eftir kaup spænska fyrirtækisins.Í viðtali við fréttastofu sagði Ólafur yngri að starfsemi Samskipa myndi ekki breytast að ráði eftir kaup spænska fyrirtækisins, sem heitir Boluda, og að kaupverðið myndi ekki verða gefið upp.Sagan um eignarhald Ólafs Ólafssonar á Samskipum síðastliðna þrjá áratugi er áhugaverð í meira lagi. Til þess að átta sig á þessari sölu og samhengi hennar þarf að spóla áratugi aftur í tímann, til þeirra ára í lok síðustu aldar Samband íslenskra s