Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir karlmanni sem sakaður er um nauðgun á Írlandi árið 2004. Maðurinn hefur dvalið á Íslandi frá 2017 en hann breytti nafni sínu 2012. Taka átti málið fyrir á Írlandi 2007, eftir að hann var handtekinn í annað sinn, en hann mætti ekki.