Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta

Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra.RÚV / Ragnar VisageÍ skriflegu svari frá ráðuneytinu til fréttastofu segir að þrjú stöðugildi hafi verið lögð niður og ekki ráðið í tvö önnur störf sem losnuðu á árinu. Þrír tímabundnir ráðningarsamningar verði ekki framlengdir.Störfin séu þvert á svið ráðuneytisins, sérfræðistörf og stjórnarráðsfulltrúi. Uppsagnirnar taki mið af framlögum til reksturs ráðuneytisins í fjárlögum og hagræðingarkröfu stjórnvalda.
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar