Mágkona Garps Elísabetarsonar sagði fyrir dómi í dag að á meðal gagna sem lögð hafi verið fram í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti, séu fölsuð skjáskot. Var þar búið að breyta ummælum sem hún skrifaði og hafði hún samband við lögreglu vegna málsins.