Meint áreiti Írisar Helgu Jónatansdóttur á hendur Garpi Elísabetarsyni og dóttur hans hefur haft gríðarleg áhrif að sögn barnsmóður Garps sem bar vitni í aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Brast hún í grát þegar hún lýsti því hvaða áhrif málið hafi haft á dóttur þeirra.