Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis segir sér hafa runnið blóðið til skyldunnar að stíga í pontu Alþingis til að tjá sig um nýtt frumvarp um vændi. Frumvarpinu sé ætlað að draga úr eftirspurn úr vændi og vernda þau sem stundi það, Þórunn segir ástandið slæmt hér á landi, Reykjavík hafi verið lýst þannig að borgin sé að verða eins og Bangkok norðursins.