Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að það muni hafa afleiðingar ef rétt reynist að stjórnarformaður Landsvirkjunar hafi farið með rangt mál gagnvart Herði Arnarsyni, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins, um ástæður þess að fundur sem Hörður óskaði eftir með ráðherranum á síðasta ári var aldrei haldinn.