Íris Eik Ólafsdóttir er réttarfélagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og framkvæmdastjóri Samskiptamiðstöðvarinnar í Skeifunni. Hún og hennar fjölskyldumeðlimir nota staðsetningarappið Life 360 en ein kveikjan að því að þau hlóðu appinu niður var að maðurinn hennar, sem er lögmaður, hvarf einn daginn og hún náði ekki í hann í síma.„Hann hafði talað við einn svolítið svona æstan síbrotamann fyrr um morguninn sem hafði staðið í hótunum við hann, og ekkert mál, við erum bæði vön því að vinna í krefjandi umhverfi og maður hristir það bara af sér,“ útskýrir Íris Eik. GLÓRULAUSAR HUGSANIR Hún segist þó hafa orðið óróleg þegar ástandið dróst á langinn, „ætli þessi sé bara búinn að ræna honum, bara svona glórulausar hugsanir“.Þegar maðurinn hennar hringdi til baka eftir sex klukkustundir kom í ljós