| 04:36 | Kannast ekki við ágreining um arðgreiðslur Landsvirkjunar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að fundur hennar og Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunar í hádeginu í gær hafi ekki verið sérstaklega boðaður vegna afsagnar hans. Þá hafi breytingar á arðgreiðslum Landsvirkjunar til ríkisins ekki verið til umræðu.„Við vorum bara að ræða um stöðu mála hjá fyrirtækinu. Þetta var reyndar fundur sem stóð til að halda í talsvert langan tíma en ég hef verið erlendis,“ segir Kristrún. „Þannig að ég vissi af þessu í dag að það kæmi til þess að hann myndi segja starfi sínu lausu.“Hörður lætur af störfum í lok október en hann tók við stjórn fyrirtækisins árið 2009 og hefur því staðið í brúnni í 17 ár. KANNAST EKKI VIÐ ÁGREINING UM ARÐGREIÐSLUR Aðspurð hvort hún viti til þess að ágreiningur hafi verið á milli Harðar og stjórnar Landsvirkjunar hv | |
| 02:50 | 20 manns sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Tuttugu manns hefur verið sagt upp störfum í fiskvinnslu fyrirtækisins Premium of Iceland í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins sem birt var á vef Víkurfrétta.Þar kemur jafnframt fram að þrjátíu og átta manns hafi starfað hjá fyrirtækinu í upphafi árs en að starfsfólki hafi raunar þegar fækkað fyrir uppsagnirnar vegna aðgerða heilbrigðiseftirlits.Fyrr í mánuðinum staðfesti úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja um að leggja fimmtíu þúsund króna dagsektir á fyrirtækið þar til starfsemi í fiskvinnslunni hefði verið stöðvuð. Var það vegna umsagnar skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar um að fiskvinnsla að Brekkustíg 22-24 samræmdist ekki aðalskipulagi. GÆTI HAFT ÁHRIF Á FLEIRI FYRIRTÆKI Fyrirtækið bendir þó á að fiskvinnsla sé skrá | |
| 00:20 | Sjaldan verið tengdari en samt fleiri einmana Andleg vanlíðan og einmanaleiki meðal ungmenna hefur aukist að sögn Dóru Guðrúnar Guðmundsdóttur, sviðsstjóra lýðheilsusviðs Embættis landlæknis.„Við höfum kannski sjaldan verið jafn mikið í tengslum í gegnum samfélagsmiðla en það er alltaf hærra og hærra hlutfall sem er einmana,“ segir Dóra. Hún segir mögulegt að samfélagsmiðlabann fyrir 15 ára og yngri geti haft einhver áhrif en að fleiri þættir þurfi að koma til.Dóra leggur áherslu á að félags- og tilfinningafærni verði kennd á öllum skólastigum svo ungmenni læri að ræða erfiðar tilfinningar og takast á við mótlæti á uppbyggilegan hátt. „Þess vegna er svo mikilvægt að við tölum saman, þvert á kynslóðir,“ segir Dóra. | |
Í gær, 1. október | ||
| 23:42 | Kortavefurinn nú sérstaklega hannaður fyrir síma Kortavefurinn map.is hefur verið uppfærður og er Íslandskort vefsins nú sérstaklega sett upp fyrir símtæki. | |
| 23:26 | Af hverju 3 en ekki 4 eða 5 embætti? Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir tjáði sig um fjölda fyrirhugaðra lögregluembætta við mbl.is. | |
| 23:03 | Ming Ting: „Ég gat ekki drepið mig“ „Ég gat ekki drepið mig. Þess vegna bað ég eiginmann minn um að gera það. En hann hitti ekki og því er ég enn á lífi – því miður.“ Þetta segir Ming Ting Mancel í einkaviðtali við Sigurstein Másson í nýrri þáttaröð af Sönnum sakamálum. | |
| 23:00 | Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Borgarstjórn hefur samþykkt að hefja útboð afmarkað sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Samkvæmt tillögu er gert ráð fyrir því að verkið verði boðið út frá 1. maí 2027 til sex ára með möguleika á framlengingu til tveggja ára og geti samtals orðið til átta ára. | |
| 23:00 | Ekki forsvaranlegt að gefa barni 3 í einkunn Mennta- og barnamálaráðuneytið segir nýjan talnakvarða við námsmat í grunnskólum settan á í því markmiði að gera framsetningu einkunna skýrari og samræmdari sem stuðli að auknu jafnræði nemenda. | |
| 22:24 | Þetta var „díllinn“ allan tímann Aðgerðir sem forsætisráðherra boðaði í dag um að draga úr boðuðum gjaldskrárhækkunum, meðal annars, er það sem var samið um fyrir tveimur árum þegar kjarasamningar voru undirritaðir. Þetta segir formaður VR. Forseti ASÍ segir „ÞÓ ÞAÐ NÚ VÆRI“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag að hún ætlaði á morgun að fara fyrir ríkisstjórn með aðgerðalista og tillögu að yfirlýsingu ríkis, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um næstu skref til að verja kjarasamninga.Með þessu ætti að ná verðbólgu niður og skapa aðstæður fyrir vaxtalækkun. Ríkisstjórnin sé einnig reiðubúin til að halda hækkunum á gjaldskrám innan við 2,5% á næsta ári.Eftir rétta viku rennur út sá frestur sem aðilar atvinnulífsins hafa til að | |
| 22:20 | Ágreiningur og Hörður hætti „fyrr en ella“ Hörður Arnarson, sem mun hætta sem forstjóri Landsvirkjunar næstkomandi mánaðamót, og stjórn Landsvirkjunar voru ekki alltaf sammála um allt. | |
| 22:09 | Íslendingar gætu nýtt eigin heilsugögn betur í forvörnum Íslendingar gætu nýtt eigin heilsufarsupplýsingar betur til að fylgjast með áhættuþáttum og koma fyrr auga á breytingar sem kunna að benda til veikinda. Þetta sagði Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, í Kastljósi kvöldsins.Thor nefndi sérstaklega blóðþrýsting og blóðsykur, sem séu einfaldar mælingar en geti gefið mikilvægar upplýsingar ef þeim er fylgt eftir yfir tíma.„Aðalatriðið er kannski að mæla hann nokkrum sinnum, búa sér til heilsusögu,“ sagði Thor um blóðþrýsting. Hann sagði reynslu úr rannsóknum Hjartaverndar hafa sýnt að algengt væri að fólk gengi um með of háan blóðþrýsting eða blóðsykur án þess að vita af því. Slíkir áhættuþættir geti leitt til sjúkdóma bæði eftir skemmri og lengri tíma.Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, segir re | |
| 22:01 | Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au-pair úr sögunni Hætt verður að veita dvalarleyfi til au pair sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins og munu útlendingar almennt þurfa að dvelja á Íslandi í sex ár í stað fjögurra áður en þeir öðlast rétt á ótímabundnu dvalarleyfi ef frumvarpsdrög dómsmálaráðherra ná fram að ganga. Þar eru skilyrði fjölskyldusameininga sömuleiðis þrengd og lagt til að dvalarleyfi verði veitt til þolenda vinnumarkaðsmisnotkunar. | |
| 21:59 | Verkefnastjóri lætur af störfum Helga Jóna Jónasdóttir, verkefnisstjóri Sundabrautar hjá Vegagerðinni, lét af störfum í sumar. Hún hefur verið verkefnastjóri síðan í maí 2023. | |
| 21:30 | Fleiri ökutækjum var fargað í fyrra Fleiri ökutækjum var skilað inn til úrvinnslu á síðasta ári en árin þar á undan. Alls var 8.817 ökutækjum skilað inn í fyrra en árið 2024 voru þau 8.006 og árið þar á undan voru þau 8.163 talsins. | |
| 21:10 | Skora á stjórnvöld að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón Sveitarstjórn Hrunamannahrepps í uppsveitum Árnessýslu mótmælir fyrirhuguðum hækkunum stjórnvalda á virðisaukaskatti á aðgang að baðlónum harðlega. Hún skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum.Málið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar í dag. Þar var samþykkt einróma að minna á að í Árnessýslu sé fjöldi baðlóna sem hafi borið hróður landsins víða.„Í Hrunamannahreppi eru þrjú baðlón, Gamla laugin, Hrunalaug og í Kerlingarfjöllum, allt þekktir áfangastaðir sem hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulíf og ferðaþjónustu á svæðinu. Aðdráttarafl þeirra styður við störf, eflir aðra þjónustu og skapar verðmæti í nærsamfélaginu. Mikilvægi þeirra nær því langt út fyrir eigin rekstur,“ segir í bókuninni af fundinum í dag.Að mati sveitarstjórnar er hætta á að fyrirhuguð hækkun á virðisaukaskatti, úr 11 | |
| 21:00 | Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Þóroddur Bjarnason, prófessor á félagsvísindasviði, segir að með því að fjölga þingmönnum úr 63 í 85 til að fjöldi kjósenda að baki hverjum þingmanni yrði sambærilegur í öllum kjördæmum. Þannig sé betur hægt að jafna atkvæðavægi og tryggja jafnræði án ofríkis meirihlutans. | |
| 20:52 | Vatnavextir við Þórsmörk Miklir vatnavextir eru nú í Krossá og Markarfljóti og er fljótið búið að grafa sig inn í veginn sem liggur að Þórsmörk. | |
| 20:38 | Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi Formenn Samtaka atvinnulífsins og ASÍ eru sammála um að skilaboð forsætisráðherra séu skref í rétta átt og hjálpi til við samningaborðið. Forsætisráðherra boðaði í dag aðgerðir til að koma í veg fyrir átök á vinnumarkaði með því meðal annars að draga úr boðuðum gjaldskrárhækkunum. Hvort það dugi til að koma í veg fyrir að kjarasamningar haldi verði að koma í ljós.„Það sem upp á vantar er að Samtök atvinnulífsins skila algjörlega auðu,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ. > „Þetta eru kjarasamningar verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins og endurskoðunin snýr að því. Þannig að Samtök atvinnulífsins verða að koma fastar inn í þetta en það hjálpar alveg klárlega það sem ríkisstjórnin er að leggja inn í þetta.“ BRUGÐIÐ GETI TIL BEGGJA VONA Bjarni Benediktsson, framkvæmdas | |
| 20:37 | Þrengt að fjölskyldusameiningum og dvalarleyfum Þrengt verður að skilyrðum fjölskyldusameininga og ótímabundinna dvalarleyfa verði frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, sem nú er í samráðsgátt stjórnvalda, samþykkt á Alþingi. | |
| 20:31 | Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa Til stendur að hætta útgáfu dvalarleyfa til fólks utan EES sem kemur til Íslands í vistráðningu, það er sem au-pair. Markmiðið er að koma í veg fyrir misnotkun. Þetta kemur fram í drögum dómsmálaráðherra að breytingu á útlendingalögum. Drögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.Í greinargerð segir að vistráðnir séu jafnan ungir að árum og án tengslanets, háðir einni fjölskyldu um húsnæði, fæði, greiðslur og dvalarleyfi. Þeir sinni oft heimilis- og ummönnunarstörfum utan kjarasamninga og eftirlit með aðstæðum sé erfitt. Vísbendingar séu um að fólk hafi verið misnotað.766 dvalarleyfi vegna vistráðningar voru veitt á árunum 2017 til 2024. Mikill meirihluti, eða 78%, til ríkisborgara Filippseyja. HORFT TIL ANNARRA NORÐURLANDA Meginmarkmið breytinganna eru að færa umgjörð dvalarleyfa n | |
| 20:15 | Casa Christi kennsluhæft á ný 2030 Stefnt er að húsið Casa Christi við Menntaskólann í Reykjavík (MR) verði kennsluhæft á ný haustið 2030 og að allt skólastarf MR geti þá fram á skólareitnum við Lækjargötu. | |
| 20:11 | „Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“ Andleg heilsa er eitt af stærstu umræðuefnum unglingsáranna og mikilvægt að tala um erfiðu hlutina. Þetta segja ungmenni sem tóku þátt í setningu Forvarnardagsins í Verslunarskóla Íslands. FORVARNARDAGURINN MIKILVÆGUR Yfirskriftin í ár er Samtal og samkennd og er sjónum beint að unglingum í 9. bekk grunnskóla og nemendum framhaldsskóla, en þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem Forvarnardagurinn er haldinn.Andleg heilsa er eitt af stærstu umræðuefnum unglingsáranna og mikilvægt að tala um erfiðu hlutina. Þetta segja ungmenni sem tóku þátt í setningu Forvarnardagsins í Verslunarskóla Íslands.Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægum þáttum sem geta aukið vellíðan og lýðheilsu ungmenna.„Mér finnst það skipta máli, sérstaklega til að vekja athygli á því hvernig unglingar fá vímuefni og | |
| 19:55 | Marco Rubio heimsækir Ísland Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þekkst boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til Íslands og kemur til landsins í næstu viku. | |
| 19:41 | Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu Mikil vinna var lögð í fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats í Grindavík sem birt var í síðustu viku. Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjóri forsætisráðuneytisins í málefnum Grindavíkur segir áhættumatið í sífelldri endurskoðun. Áhættumatið grundvallast á hættumati Veðurstofunnar, kringumstæðum á vettvangi og mótvægisaðgerðum.„Og allt þetta breytist stöðugt. Og það er áskorunin að vera þá sífellt að fylgjast með og endurbæta áhættumatið,“ segir Skarphéðinn.Ýmsar mótvægisaðgerðir í áhættumati Grindavíkur eru eftir. Það á við um flóttaleiðir í slæmu veðri og einnig snjóruðning. Sífelld endurskoðun stendur yfir, segir verkefnisstjóri stjórnvalda.Alvarlegasta sviðsmyndin í áhættumatinu er eldgos innan bæjar eins og varð 14. janúar 2024. Sú staða er talin ásættanleg, segir í matinu, | |
| 19:30 | Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Landsréttur taldi það ekki skipta máli þótt ummæli Pálína Helga Þórarinsdóttir um Ingó veðurguð hafi verið sett fram í kaldhæðni enda væri ekki hægt að túlka þau á annan veg en að Ingó hefði nauðgað ungum konum og beitt þær ofbeldi. Ummælin voru dæmd dauð og ómerk. | |
| 19:15 | Aðhald með ólíkum hætti Ráðuneytin ellefu hafa mætt eða hyggjast mæta aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar með ólíkum hætti en aðhaldskrafan nær til ríkisstofnana og þar af leiðandi til ráðuneytanna. | |
| 19:11 | Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti.Hörður greindi frá ákvörðun sinni á starfsmannafundi eftir hádegi í dag. Á fundinum kom fram að ástæða þess að hann ákvað að hætta væri ágreiningur um stjórnarhætti.Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, sagði við fréttastofu fyrir stundu að Hörður hefði stýrt fyrirtækinu vel í 17 ár en að eðlilega væri fólk ekki alltaf sammála.Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri tekur tímabundið við starfi forstjóra um næstu mánaðamót þar til nýr forstjóri verður ráðinn. | |
| 18:19 | Ingó Veðurguð vann meiðyrðamál í Landsrétti Landsréttur dæmdi í dag ummæli konu á sextugsaldri í garð Ingólfs Þórarinssonar, Ingós veðurguðs, dauð og ómerk. | |
| 18:18 | Nærri 30 sagt upp: Skammur fyrirvari 28 starfsmönnum Klettabæjar var sagt upp í vikunni þar sem þjónustusamningar vegna þriggja íbúa renna út um áramót og verða ekki endurnýjaðir. | |
| 18:17 | Samtalið mikilvægt á umbrotatímum Það eru nú einhverjir mestu umbrotatímar í seinni tíð og því tímabært að hefja samtal um hvernig samfélagi við viljum búa í. Þetta segir forseti Íslands sem segir ekki ganga að fylgjast aðgerðarlaus með á samfélagsmiðlum, áskoranir blasi við. HVERNIG SAMFÉLAG VILJUM VIÐ SKAPA SAMAN Forseti Íslands á frumkvæði að samtali laugardaginn 10. október til að ræða spurninguna: Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk á öllum aldri kemur saman til að hlusta og tala saman. Samtalið fer fram um allt land og er hægt að velja sinn uppáhaldsstað. Allar upplýsingar má finna inná talasaman.is.„Við erum á mestu umbrotatímum sem ég man eftir á mínum líftíma og ég held að það leynist engum að áskorarnir eru víða en við höfum val við getum lyft okkur upp og spurt | |
| 18:05 | Beitti konu sína andlegu ofbeldi í áraraðir Manni sem ákærður er fyrir brot í nánu sambandi, með því að beita þáverandi eiginkonu sína og stjúpsyni andlegu ofbeldi og hótunum í rúm 7 ár, verður gert að víkja úr dómsal þegar fyrrverandi eiginkona hans gefur skýrslu við aðalmeðferð málsins. | |
| 18:00 | „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ásdís Kristjánsdóttir segir Kópavogsbæ hafa verið að prófa sig áfram með nýja útboðsleið þegar bygging stúku við Kórinn var boðin út. Kærunefnd útboðsmála hefur úrskurðað útboðið ólögmætt. Ásdís segir orð oddvita Samfylkingar um að bærinn hafi flýtt sér um of vera dapurlegt pólitískt útspil. | |
| 17:57 | Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík Borgarráð hefur samþykkt að skipa viðræðuhóp sem fær umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs skóla í Reykjavík.Í fundargerð borgarráðs kemur fram að Hildur Björnsdóttir hafi lagt fram tillögu um þetta 29. september sem tekin var fyrir á fundinum í dag.Ebba Schram borgarlögmaður verður formaður hópsins, Haraldur Sigurðsson, deildarstjóri aðalskipulags á umhverfis- og skipulagssviði, og Hörður Hilmarsson, skrifstofustjóri á fjármála- og áhættustýringarsviði, verða einnig í honum.Hópurinn á að upplýsa borgarráð reglulega um framvindu verkefnisins. HÓPURINN FÆR SKÝRT UMBOÐ Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins lögðu fram bókun á fundinum þar sem kemur fram að meirihluti borgarstjórnar vinni hörðum höndum að því að stuðla að fjölbreyttu úrvali mennt | |
| 17:53 | Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Enn á eftir að skipa nýjan lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu og ekki liggur fyrir hvenær valið liggur fyrir. Langt gengið í hálft ár er liðið frá því að Halla Bergþóra Björnsdóttir, þáverandi lögreglustjóri, færði sig yfir í embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl. | |
| 17:45 | Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og gert konu að greiða Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktum sem Ingó Veðurguð, miskabætur vegna ummæla sem hún lét falla við frétt sem deilt var á Facebook.Ingó fór í mál við konuna vegna þess sem hann taldi ærumeiðandi ummæli. Fréttinni var deilt á Facebook-síðu Vísis í mars 2022 og hafði fyrirsögnina „Ingó segist ekki hafa neinu að tapa“. Í fréttinni var fjallað um grein sem Ingó hafði ritað vegna fjölda ásakana gegn honum um kynferðisofbeldi.Annar notandi skrifaði athugasemd þar sem stóð „Áfram gakk Ingó minn“ og konan brást við þeim ummælum með að skrifa „þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“.Í dómi Landsréttar segir að í málinu vegist á ólík stjórnarskrárvarin réttindi: friðhelgi einkalífs annars vegar og tjáningarfrels | |
| 17:27 | Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna Samtal og samkennd er yfirskrift forvarnardagsins sem er í dag. Í ár er sjónum beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og öllum nemendum í framhaldsskóla. HVETJA UNGT FÓLK TIL UMHUGSUNAR UM EIGIN LÍFSSTÍL OG FRAMTÍÐ Ingibjörg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Fornvarnardagsins hjá embætti landlæknis, segir markmiðið með deginum að vekja athygli á mikilvægum verndandi þáttum sem geta aukið vellíðan og lýðheilsu ungmenna, og hvetja þau til umhugsunar um eigin lífsstíl og framtíð.Samkvæmt rannsókn sem var kynnt í Lýðheilsuvísi embættis landlæknis í síðasta mánuði meta 43% framhaldsskólanema andlega heilsu sína slæma.„Við höfum fengið í gegnum tíðina frá bæði nemendum og kennurum að við ættum að leggja meiri áherslu á hvað er hægt að gera til að hjálpa okkur að líða betur, heldur en | |
| 17:17 | 28 sagt upp hjá Klettabæ 28 starfsmönnum Klettabæjar var sagt upp störfum í vikunni. Jóhanna M. Fleckenstein, framkvæmdastjóri og annar af tveimur eigendum Klettabæjar, segir að uppsagnirnar séu tilkomnar vegna þess að samningar um þjónustu við þrjá íbúa renna út um áramót og verða ekki endurnýjaðir. Þess í stað fá íbúarnir, sem allir eru fullorðnir, inni í framtíðarúrræðum á vegum þeirra sveitarfélaga þar sem þeir eiga lögheimili.„Það var skammur fyrirvari á þessu. Það er alltaf lokamarkmið okkar að þau útskrifist og þau séu örugg til framtíðar. Þetta eru yfirleitt einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir,“ segir Jóhanna í samtali við fréttastofu.Starfsfólkið sem missir vinnuna var í misjöfnu starfshlutfalli.Klettabær er einkarekið úrræði og þar dvelja þjónustunotendur á grundvelli samninga milli lögheimilis | |
| 17:15 | Einn fluttur með sjúkrabíl eftir árekstur Einn var fluttur til skoðunar eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg á fimmta tímanum í dag. | |
| 17:12 | Fleiri börn hafi komið að árásinni Ekki liggur fyrir á þessari stundu hversu mörg börn komu að atvikinu eða með hvaða hætti. | |
| 16:51 | „Hefur heldur betur fengið yfir sig gusurnar“ Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir Hörð Arnarson skila Landsvirkjun fjárhagslega sterkari en nokkru sinni eftir sautján ár í forstjórastólnum. | |
| 16:46 | Hörður beint í frí og veitir ekki viðtöl að sinni Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, fór beinustu leið í vikufrí til útlanda eftir að hann tilkynnti um afsögn sína á starfsmannafundi í húsakynnum Landsvirkjunar í Katrínartúni um miðjan dag í dag. | |
| 16:40 | Árekstur við Hamraborg Árekstur varð á suðurleið á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg í Kópavogi um hálf fimm. | |
| 16:40 | Hafnað að stöðva framkvæmdir í Þjórsárverum Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Náttúrugriða um að stöðva tímabundið fyrirhugaðar framkvæmdir Landsvirkjunar í Þjórsárverum. | |
| 16:38 | Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Innviðaráðherra hefur gert veigamiklar breytingar á reglum um leigubifreiðaþjónustu. Meðal breytinga er að próftaka fer nú fram án utanaðkomandi aðstoðar, leigubifreiðastöðvar eiga að halda rafræna skrá yfir allar seldar ferðir og munu leigubifreiðar fá litaðar númeraplötur. | |
| 16:38 | Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað Starfsmaður verktakafyrirtækisins Nestaks slasaðist alvarlega í vinnuslysi á þriðjudag. Starfsmaðurinn, sem er karl á fertugsaldri, var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík með sjúkraflugi.Ari Benediktsson framkvæmdastjóri Nestaks segir manninn hafa fallið fram af svölum á annarri hæð þar sem hann var að störfum á verkstað í miðbæ Neskaupsstaðar á þriðjudag.Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, staðfestir að slysið sé til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu. | |
| 16:37 | Skriðuviðvörun til morguns „Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni á þessum áhrifasvæðum og ekki hægt að útiloka fleiri skriður eða grjóthrun.“Þetta segir Daniel Ben-Yehoshua, sérfræðingur í ofanflóðahættumati hjá Veðurstofunni.Nokkrar aurskriður hafa fallið á Austfjörðum þar sem skriðuviðvörun er í gildi. Fossá við botn Reyðarfjarðar hefur verið mjög vatnsmikil. Hún flæddi yfir bakka sína í morgun og sökkti vinnuvélum við bæinn Sléttu.Gul skriðuviðvörun er í gildi á Suðausturlandi, Austfjörðum og sunnanverðu miðhálendinu. Hún verður í gildi til klukkan 6 í fyrramálið.Á Austfjörðum er jarðvegur mettaður og úrkoma getur valdið skriðuvirkni, einkum í bröttum hlíðum. Draga á úr úrkomu í kvöld og nótt og þá ætt | |
| 16:30 | Innviðagjaldið 15 milljónir á íbúð Ari, sem hefur látið taka saman fyrir sig minnisblað um áhrif lóðagjalda á fasteignaverð í Reykjavík, segir að innviðagjaldið sé 150 þúsund á fermetra. | |
| 16:13 | Fiskvinnslufyrirtæki í Reykjanesbæ gert að hætta Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur staðfest ákvörðun um að leggja 50 þúsund króna dagsektir á fiskvinnslufyrirtækið Premium of Iceland þar til starfsemi þess að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ hefur verið stöðvuð. | |
| 15:52 | Uppsagnir hjá Klettabæ Klettabær, sértækt búsetuúrræði til langs- og skamms tíma, hefur sagt upp 28 starfsmönnum. Breytingarnar tengjast því að einhverjir skjólstæðingar eru á leið í önnur úrræði. Framkvæmdastjórinn segir þetta þungbært skref. | |
| 15:38 | Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Landsréttur hefur dæmt ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur í garð Ingólfs Þórarinssonar, Ingó veðurguðs, dauð og ómerk og gert henni að greiða Ingólfi 350 þúsund krónur auk einnar milljónar króna í málskostnað. Í ummælum sínum gerði Pálína Helga því skóna að Ingólfur legði það í vana sinn að nauðga ungum konum og beita þær ofbeldi. | |
| 15:33 | „Að sjálfsögðu“ reiðubúin í að takmarka hækkanir ef allir geri sitt Kristrún Frostadóttir segir ríkisstjórnina reiðubúna til að tamarka hækkanir á krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5 prósent ef allir geri sitt og kjarasamningar halda. Þetta tilkynnti hún í ræðu á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. | |
| 15:33 | Kristrún tilbúin í aðgerðir Kristrún Frostadóttir segir ríkisstjórnina reiðubúna til að tamarka hækkanir á krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5 prósent ef allir geri sitt og kjarasamningar halda. Þetta tilkynnti hún í ræðu á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. | |
| 15:30 | Kristrún boðar aðgerðir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar á morgun að leggja fyrir ríkisstjórn aðgerðalista sem miðar að því að verja kjarasamninga, ná verðbólgu niður og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta. | |
| 15:24 | Takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5% Krónutölugjöld og gjaldskrár ríkisins hækka um 2,5% um áramót en ekki um 5,2% eins og ráð var fyrir gert í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Þessu greindi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra frá á ársfundi atvinnulífsins.Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnarandstaðan hafa deilt hart á ríkisstjórnina fyrir áform hennar um að hækka gjöldin í samræmi við verðbólguspár frekar en að miða við annað, svo sem verðbólgumarkmið Seðlabankans.Kristrún sagði á fundi Samtaka atvinnulífsins í dag að ríkisstjórnin ætli á morgun að kynna aðgerðalista og tillögu að yfirlýsingu ríkis, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um næstu skref til að verja kjarasamninga. Með þessu eigi að ná verðbólgu niður og skapa aðstæður fyrir vaxtalækkun.„Þetta er gert með afmörkuðum að | |
| 15:05 | Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra neitaði að svara spurningum fréttamanns þegar hún var spurð út í mál Guðmundar Inga Kristinssonar. Hún sagðist þó ekki hafa komið nálægt umdeildum skilaboðum sem fyrrverandi aðstoðarkona Guðmundar Inga sendi á hann. | |
| 15:05 | Réttur fólks með þroskahömlun til að taka skaðlegar ákvarðanir Sonur Ástu Maríu er 26 ára en hann hefur búið í eigin íbúð í þjónustukjarna í 4 ár. Þar nýtur hann aðstoðar starfsfólks en hann er með downs og einhverfugreiningu. Ásta segir að sonur hennar hafi alltaf sótt mikið í mat en að hún hafi alltaf lagt áherslu á að hann borðaði hollt fæði og hreyfði sig mikið. Hann sé með áráttuhegðun sem lýsi sér meðal annars í því að hann tyggi ermar á fötum, sem geti mögulega skýrt hvers vegna hann sæki í mat. Þótt um sé að ræða sókn í mat í tilfelli sonar Ástu geta sömu spurningar kviknað varðandi til dæmis áfengisneyslu.Ásta María Jensen hefur áhyggjur af heilsu sonar síns sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti í búsetuúrræði fyrir fólk með þroskahömlun. Starfsfólk segist ekki mega banna honum að borða því það teljist nauðung. Fjallað er um málið í Þet | |
| 14:56 | Dregur fram manneklu á hjúkrunarheimilum Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður Heilahjálpar, segir það lágmark að bera gjöf sterkra geðlyfja undir aðstandendur fólks með heilabilun.Bæði hún og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segja ljóst að mönnunarvandi hrjái hjúkrunarheimili landsins.„Ef starfsfólk eða læknar á hjúkrunarheimili telja ástæðu til að gefa geðlyf þeim sem ekki hefur fengið neina slíka greiningu og er með heilabilun – þá er lágmark að ræða við aðstandendur ef sá sem er með heilabilunina getur ekki svarað fyrir sig sjálfur.“segir Ragnheiður. Hún segir að sér hafi verið brugðið eftir að hafa horft á umfjöllunina sem segir varpa ljósi á manneklu á hjúkrunarheimilum. FAGFÓLK ÞARF TIL AÐ SINNA MJÖG VEIKU FÓLKI Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, tekur í svipaðan streng. Hún telu | |
| 14:52 | Sautján ára stjórnartíð á enda Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur tilkynnt að hann muni láta af starfi forstjóra fyrirtækisins eftir 17 ár í forstjórastólnum. Hann tók við eftir mikið uppbyggingartímabil þar sem skuldir Landsvirkjunar voru talsverðar en tími hans á forstjórastólnum hefur einkennst af miklum umbreytingum hjá fyrirtækinu. | |
| 14:46 | Hörður lætur af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla árs 2009. Landsvirkjun greinir frá þessu í tilkynningu.Þar segir að á þeim 17 árum sem Hörður hefur gegnt starfinu hafi orðið stakkaskipti á bæði rekstri Landsvirkjunar og raforkumarkaðnum á Íslandi.„Hörður leiddi fyrirtækið í gegnum miklar breytingar þar sem meðal annars var endursamið við stóra viðskiptavini, fjórar nýjar virkjanir byggðar, skuldir lækkaðar og í kjölfarið er Landsvirkjun nú farin að skila þjóðinni tugum milljarða í skatta og arðgreiðslur á hverju ári,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar. GEGNIR STARFINU ÚT OKTÓBER „Ég stíg bæði ánægður og stoltur frá borði eftir þessi sautján ár. Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mör | |
| 14:45 | Beint: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Ársfundur Samtaka atvinnulífsins (SA) fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag klukkan 15-17, en hægt er að fylgjast með honum í beinu streymi hér fyrir neðan. | |
| 14:43 | Hörður hættur sem forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnarson er hættur sem forstjóri Landsvirkjunar. | |
| 14:33 | Leggur til stjórnarsamstarf D,M og B Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, leggur til að Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsóknarflokkur skoði stjórnarsamstarf að loknum næstu kosningum, fái þeir til þess umboð kjósenda. Hann telur flokkana eiga sameiginlegan hugmyndafræðilegan grunn og hvetur þá til að ræða pólitíska sannfæringu sína og sækja fram á þeim grundvelli. | |
| 14:28 | Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga dóttur sinni með því að nýta sér það að dóttirin gat ekki spornað við háttsemi hans sökum ölvunar og svefndrunga. | |
| 14:28 | Mótmæla harðlega áformum dómsmálaráðherra Byggðarráð Borgarbyggðar mótmælir harðlega og ótvírætt áformum dómsmálaráðherra um að leggja niður embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og sameina það embættum lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. | |
| 14:24 | Innkalla pistasíur vegna ólöglegs varnarefnis Matvælastofnun hefur varað við neyslu á einni lotu af ristuðum og söltuðum pistasíum merktum Krónunni sem Salvía ehf. flytur inn og beðið viðskiptavini að skila vörunni gegn fullri endurgreiðslu. | |
| 14:16 | Myndir: Menntaskólinn í Reykjavík 180 ára Í dag eru 180 ár síðan Menntaskólinn í Reykjavík var fyrst settur í fallega skólahúsinu sem nú gengur undir nafninu Gamli skóli. | |
| 13:58 | Tæplega helmingur með íþyngjandi leigu þrátt fyrir batnandi stöðu Horfurnar hjá leigjendum virðast fara batnandi, samkvæmt nýrri leigumarkaðskönnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Þar kemur fram að leigjendur telja fleiri íbúðir í boði á sama tíma og verðþrýstingur hefur minnkað. Þeir gera ráð fyrir að leiguverð hækki áfram en ekki jafn mikið og áður.Leigubyrðin er þó íþyngjandi fyrir tæplega helming leigjenda samkvæmt könnuninni og vísbendingar eru um að fleiri leigjendur en áður séu að festast á leigumarkaði. Þeim sem leigja af nauðsyn fjölgar hlutfallslega og fólk er að meðaltali lengur í leiguíbúð en áður. Leigjendur eru svartsýnni en áður á að komast af leigumarkaði.Leigumarkaðskönnunin leiðir í ljós nokkurn mun á innfæddum leigjendum og þeim sem hafa flutt hingað. Aðfluttir leigjendur segjast sjaldnar fá greiddar húsnæðisbætur en innl | |
| 13:53 | Fjölbreytt starf og lífleg kennsla Sitthvað verður til gamans og fróðleiks gert í dag, 1. október, í tilefni af 30 ára afmæli Borgarholtsskóla í Grafarvogi í Reykjavík. | |
| 13:44 | Hörður á fundi í Stjórnarráðinu Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar fundar í Stjórnarráðinu á Hverfisgötu samkvæmt heimildum mbl.is. | |
| 13:35 | 500 íslenskir aukaleikarar Tökur standa nú yfir á þremur erlendum kvikmyndaverkefnum hér á landi. Þetta staðfestir Leifur B. Dagfinnsson, framkvæmdastjóri True North, en fyrirtækið sér um framleiðsluna hér á landi. | |
| 13:31 | Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Einungis vika er til stefnu til að bregðast við forsendubresti kjarasamninga og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að væntingar séu um útspil frá stjórnvöldum er varðar gjaldskrárhækkanir. Ekkert svigrúm sé í raun til staðar og tvísýnt með framhaldið. Formaður VR segist ekki bjartsýn. | |
| 13:25 | Allir níu neita sök í Straumsvíkurmálinu Allir níu sakborningarnir í Straumsvíkurmálinu neituðu sök við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Aðeins einn var viðstaddur þingfestingu en hinir tóku þátt frá fangelsunum að Litla-Hrauni og Hólmsheiði í gegnum fjarfundarbúnað.Níu karlmenn, sex erlendir og þrír íslenskir, eru ákærðir fyrir innflutning á yfir 100 kílóum af kókaíni í sjókistu súrálsskips sem kom til hafnar í Straumsvík í júní.Ákæran er í þremur hlutum. Fimm erlendir karlmenn ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að sammælast um og framkvæma innflutning á 106,2 kg af kókaíni með súrálsskipi.Íslendingarnir þrír eru ákærðir fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að taka á móti fíkniefnunum. Sjötti erlendi maðurinn er ákærður fyrir að hafa flutt inn kafara | |
| 13:19 | Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Allir níu í Straumsvíkursmálinu svokallaða neituðu sök við þingfestingu málsins. Þeir eru ákærðir fyrir stórt fíkniefnalagabrot með því að hafa flutt inn 106 kíló af kókaíni í sjókistu í skipi. | |
| 13:19 | Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun 81 árs kona, sem tók svefnlyf að staðaldri í nær átján ár, segist hafa orðið mjög hissa á því hversu auðvelt reyndist að draga úr notkuninni með réttum stuðningi. Samhliða því hafi orðið mikil breyting á bæði andlegri og líkamlegri líðan hennar. Yfir þriðjungur áttatíu ára og eldri notar svefn- og slævandi lyf hér á landi. | |
| 13:19 | „Ef ég get þetta þá geta allir þetta“ Yfir þriðjungur áttatíu ára og eldri notar svefn- og slævandi lyf hér á landi. 81 árs kona, sem tók svefnlyf að staðaldri í nær átján ár, segist hafa orðið mjög hissa á því hversu auðvelt reyndist að draga úr notkuninni með réttum stuðningi. Samhliða því hafi orðið mikil breyting á bæði andlegri og líkamlegri líðan hennar. | |
| 13:08 | Vegir lokast vegna vatnavaxta Rigningar síðustu daga eru farnar að valda skemmdum á vegum á suðaustanverðu landinu.Þórsmerkurvegi var lokað fyrir umferð milli Nauthúsagils og Jökultungna rétt fyrir klukkan eitt. Brotnað hafði upp úr veginum þar sem gróf undan honum. Er nú bara þunn rönd vegarins eftir á einum stað og þar kemst enginn leiðar sinnar á bíl.Öldufellsleið var lokað í morgun. Þar er svo mikið vatn á veginum að hann er ófær öllum farartækjum. Veginum um Breiðdalsheiði hefur líka verið lokað vegna vatnsskemmda. Vegurinn fór í sundur á kafla vegna vatnavaxta. | |
| 13:07 | Tæplega 18 stiga hiti á Siglufirði Það er hlýtt í veðri víða á landinu á þessum fyrsta degi októbermánaðar. | |
| 12:51 | Sorphirða í Breiðholti fer í útboð Tillaga um útboð á sorphirðu við heimili í Breiðholti var samþykkt á fundi borgarstjórnar sl. þriðjudag, en það voru meirihlutaflokkarnir þrír, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Viðreisn, sem lögðu fram tillögu þar um. | |
| 12:29 | Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun eftir hádegi. Vísir greindi fyrst frá fundinum og sagði að Hörður Arnarsson forstjóri hefði boðað til hans.Fréttastofa hefur hvorki náð tali af Herði né upplýsingafulltrúum fyrirtækisins.Ekki er vitað hvert efni fundarins er. Í frétt Vísis er því velt upp hvort hann hyggist láta af störfum og segist miðillinn hafa heimildir fyrir því að hann hafi velt slíku fyrir sér. Mbl.is segir að orðrómur hafi verið uppi um að Hörður hygðist láta af starfi.Hörður var ráðinn forstjóri Landsvirkjunar 2009.Hörður Arnarsson, forstjóri Landsvirkjunar.RÚV / Guðmundur Bergkvist | |
| 12:28 | „Erum enn að vinna úr miklum gögnum“ Innbrotið í minkabúið á Dalsbúi í Mosfellsdal í júlí síðastliðnum er enn óupplýst. | |
| 12:27 | Stutt í að vegurinn opnist: Ökumaðurinn lítið meiddur Vonir standa til að hægt verði að opna Þverárfjallsveg á næsta klukkutímanum en mjólkurbíll með tengivagn valt á veginum í morgun sem þverar veginn. | |
| 12:19 | Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu Fjórir karlmenn eru grunaðir um að hafa flutt fimm kíló af amfetamíni til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi. Þrír þeirra voru handteknir í byrjun september og sá fjórði viku síðar.Mennirnir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, til 28. október, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Fjórmenningarnir eru jafnframt grunaðir um að hafa veitt fleiri fíkniefnasendingum viðtöku á undanförnum vikum. Við húsleitir fundust fíkniefni, meðal annars eitt kíló af ketamíni.Í tilkynningu lögreglu segir að stefnt sé að því að ljúka rannsókn fljótlega. Málið verði í framhaldinu sent til embættis héraðssaksóknara. | |
| 12:16 | „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, beri öll merki þess að Kópavogsbær hafi flýtt sér of mikið við gerð þess. Engin tilviljun sé að fyrsta skóflustunga hafi verið tekin daginn fyrir kjördag í vor. | |
| 12:12 | Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár Samkvæmt upplýsingum frá HMS eru alls tæplega 460 nýjar íbúðir til sölu í Hafnarfirði, töluvert fleiri en í Kópavogi, 190, og Garðabæ, 286, en þó ekki eins margar og í Reykjavík - þar sem um 630 íbúðir eru á söluskrá.Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir að skýringin á þessari stöðu sé meðal annars sú að á árunum 2024 og 2025 hafi verið lokið við um 1.100 íbúðir í Hafnarfirði. Margar þeirra eru í Hamraneshverfi en þar er gert ráð fyrir tæplega 1.900 íbúðum þegar hverfið verður fullbyggt. HÁIR VEXTIR OG STRÖNG LÁNÞEGASKILYRÐI Vandinn snúist að miklu leyti um háa vexti og ströng lánþegaskilyrði. Fólk sem vilji kaupa íbúð komist ekki inn á markaðinn. Í Hamraneshverfi sé verið að byggja nýtt hverfi með tiltölulega ódýrum íbúðum, a.m.k. mun ódýrari en á þéttingareitum, sem | |
| 12:12 | Boðar óvænt til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar hefur boðað til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun. | |
| 12:11 | Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á Íslandi 2025. Þær góðu séu að sýklalyfjasala dróst saman um tæp 5%. Ísland noti þó enn meira af sýklalyfjum en hin Norðurlöndin. Slæmu fréttirnar eru að aukning hafi orðið í greiningu á bakteríum sem séu sýklalyfjaónæmar.„Varðandi sýklalyfjaónæmi þá er það almennt lítið hér miðað við mörg Evrópulönd en við sjáum samt merki um aukið ónæmi hjá ákveðnum bakteríum og þetta aukna ónæmi getur gert sýkingar erfiðari í meðferð og fækkað þeim sýklalyfjum sem við getum notað,“ segir Anna Margrét.Anna Margrét segir að sem dæmi megi nefna aukið ónæmi fyrir E. coli-bakteríum hér á landi. „Þar erum við að sjá aukið ónæmi, bæði svokallað ESBL-ónæmi og alvar | |
| 12:09 | Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðskipta. Vitni, sem er fyrrverandi maki æskuvinarins, sagði að slitnað hefði upp úr vinskapnum vegna skuldarinnar á vordögum 2025.Þetta kom fram í máli vitnisins þegar hún gaf skýrslu á þriðja degi aðalmeðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjaness.Í málinu er Georgios Ntentes frá Grikklandi gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.Á fyrsta degi aðalmeðferðar kom fram í máli aðstandenda hins látna að Georgios hefði skuldað honum pening, en systir hans taldi upphæðina nema á annað hundrað þúsund.Gera átti hlé á aðalmeðferð má | |
| 12:07 | Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Ríkisfyrirtæki geta ekki rekið eigin utanríkisstefnu, segir Ingvar Smári Birgisson, einn þriggja stjórnarmanna RÚV sem leggjast gegn áframhaldandi sniðgöngu Eurovision. Hann telur varhugavert að stjórn félagsins taki ákvörðun sem geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Alþingis. | |
| 12:03 | Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision? Á stjórnarfundi RÚV í gær var lögð fram bókun um að beina þeim tilmælum til útvarpsstjóra að hann tilkynni EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, að RÚV taki ekki þátt í Eurovision nema Ísrael verði meinuð þátttaka. Sex af níu stjórnarmönnum lögðu fram bókunina, það er meirihluti stjórnar.Stjórnin sér sem sagt ekki um að tilkynna hvort Ísland verði með eða ekki en hefur tekið afstöðu. Hvað þýðir það?Þessi afstaða stjórnarinnar þýðir að það er mjög ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovison.Frestur til að tilkynna um þátttöku í keppninni er runninn út. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir RÚV ekki hafa tilkynnt þátttöku sína. Hins vegar hafi EBU gefið það til kynna að aðildarstöðvar hafi tækifæri fram eftir októbermánuði til þess að tilkynna þátttöku. RÚV hefur ekki tilkynnt að Ísland verði | |
| 11:57 | Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Fjórir menn voru í gær úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi fíkniefna. Mennirnir eru taldir hafa tekið á móti þónokkrum fíkniefnasendingum síðustu vikur. | |
| 11:55 | Fjórir í haldi í stóru fíkniefnamáli Fjórir karlmenn voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær úrskurðaðir í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 28. október. | |
| 11:36 | Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Einungis vika er til stefnu til að bregðast við forsendubresti kjarasamninga og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að væntingar séu um útspil frá stjórnvöldum er varðar gjaldskrárhækkanir. Ekkert svigrúm sé í raun til staðar og tvísýnt með framhaldið. Formaður VR segist ekki bjartsýn. Rætt er við Bjarna Benediktsson í hádegisfréttum Bylgjunnar. | |
| 11:33 | Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir morðið á Edilsson Martin Zingara á Kársnesi í nóvember 2025, var sagður hafa verið í uppnámi þegar vitni við aðalmeðferð málsins sagði honum frá andlátinu. Hinn látni hafði neytt kókaíns áður en hann lést. | |
| 11:25 | Einn grunaðra dvelur erlendis Einn þeirra manna sem samkvæmt heimildum mbl.is liggja undir grun í rannsókn lögreglu á stórfelldum fíkniefnalagabrotum, sölu og dreifingu fíkniefna og peningaþvætti hefur ekki verið yfirheyrður þar sem hann dvelur erlendis. | |
| 10:29 | Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu Ísland féll um tvö sæti í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.Ísland er í 26. sæti en var í 17. sæti 2021. Í tilkynningu Hugverkastofunnar segir að Ísland haldi stöðu sinni nokkuð vel á milli ára þegar litið er til aðstæðna til nýsköpunar en falli þar um eitt sæti, úr 20. í 21. Fallið er meira þegar horft er til afraksturs nýsköpunar þar sem Ísland hefur farið úr 16. sæti 2021 í 29. sæti í fyrra og er í 33. sæti í ár. Ísland hefur aldrei verið neðar á listanum yfir afrakstur nýsköpunar.Nýsköpunarvísitalan var kynnt í dag.WIPO | |
| 10:26 | Féll af rafskútu og slasaðist: Var mjög ölvaður Maður hlaut áverka á höfði og andliti eftir að hafa fallið af rafskútu á töluverðri ferð í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld. | |
| 10:22 | Sjónvarp Símans Premium skorar hæst Um 43% landsmanna telja Sjónvarp Símans Premium bestu innlendu streymisveituna samkvæmt nýrri könnun Maskínu. | |
| 09:47 | Launakröfur flugvirkja í engum takti við stöðu hagkerfisins Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir liggja á að finna lausn í kjaramálum áður en frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út eftir viku.„Kjarasamningar eru með forsendubrest í augnablikinu og við erum að ræða viðbragðið.“Bjarni var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2.Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir stöðuna þrönga fyrir alla sem koma að kjarasamningum. Vika er til stefnu til að bregðast við forsendubresti.Hann segir að atvinnurekendur vilji ekki hella olíu á eldinn með því að auka kostnað atvinnulífsins með launagreiðslum.„Vegna þess að við vitum hvað mun gerast í framhaldinu. Það mun bara viðhalda vandamálinu.“Hann segir stöðuna þrönga fyrir alla sem koma að kjaraviðræðunum. GAGNRÝNIR AFSTÖÐU FLUGVIRKJA Bjarni segir nýleg dæmi þess a | |
| 09:30 | Fluttur á sjúkrahús eftir að mjólkurbíll valt Ökumaður flutningabíls, sem var að flytja mjólk, var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki eftir að bifreiðin valt ofan við Sauðárkrók á móts við bæinn Skarð í morgun. | |
| 09:26 | Vill sérstaka umræðu um þarfir lyfjagjafa Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi við heilbrigðisráðherra um umfang og þarfir lyfjagjafa á hjúkrunarheimilinum og hvert Íslandi vilji stefna sem samfélag í umönnun aldraðra. | |