Trilla varð fyrir miklu tjóni vegna veðurs: „Þetta leit skelfilega út“

Brunavarnir Suðurnesja, lögregla og köfunarþjónusta komu að aðgerð í Sandgerðishöfn eftir að gat kom á trillu í höfninni vegna veðurs í gær. Þetta staðfestir Gunnlaugur Helgi Friðbjörnsson varðstjóri.Partur af flotbryggju brotnaði og fór utan í bátinn með þeim afleiðingum að gat kom á fremri hluta bátsins og hann fór að leka. Dælt var upp úr bátnum fyrr í dag, belgir settir utan um hann og hann hífður upp úr. Gunnlaugur segir aðgerðina hafa gengið vel fyrir sig.Jónína Hansen er eigandi bátsins sem ber nafnið Trilla, en Jónína var sjálf kölluð Trilla af föður sínum í æsku. Hún segist fara að bátnum á hverjum einasta degi og hafi gert það rétt áður en veðrið skall á í gærkvöld. Þá hafi verið allt í lagi með hann. „ÞETTA ER BARA EINS OG BARNIÐ MITT“ „Svo í morgun þegar við förum þá fæ ég á
Trilla varð fyrir miklu tjóni vegna veðurs: „Þetta leit skelfilega út“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar