Færri heimili á leigumarkaði

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun hefur endurmetið áætlaðan fjölda heimila á leigumarkaði hér á landi og eru þau færri en áður var talið. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef HMS.Stofnunin telur nú að heimilin séu allt að 48 þúsund en ekki 50 þúsund eins og áætlað var í fyrra. Hlutfall fullorðinna einstaklinga á leigumarkaði hækkaði hins vegar úr 28% í fyrra í 29% í ár samkvæmt búsetukönnun HMS sem telur skýringuna einna helst vera að meðalheimilisstærð hafi aukist lítillega – úr 2,1 í 2,2.Hlutfall barna sem býr í leiguhúsnæði hefur lækkað úr 23% í fyrra í um 20% í ár.RÚV / Ragnar Visage
Færri heimili á leigumarkaði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar