Rússnesk listakona sem dæmd var í sjö ára fangelsi fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu verður sérstakur gestur Amnesty International í Hörpu í dag. Tilefnið er 25 ára afmæli herferðarinnar, Þitt nafn bjargar lífi. Stjórnandi hjá samtökunum segir einstakt að fá til liðs við sig manneskju sem var sjálf látin laus úr fangelsi í kjölfar baráttu samtakanna.