„Ég er enn að ná mér niður á jörðina. Þegar það gerist loksins verða teknar ákvarðanir um næstu skref,“ segir barþjónninn Róbert Aron Proppé sem gerði góða ferð til Frakklands á dögunum. Róbert hafnaði í öðru sæti í alþjóðlegu barþjónakeppninni Hennessy MyWay í lok október en hann hafði áður unnið undankeppni sem haldin var í Danmörku.