Fatlaðir listamenn sýna verk sín í miðbæ Selfoss

Ný listasýning í miðbænum á Selfossi hefur fengið mikla athygli en þar sýna fatlaðir listamenn verk sín frá Ási styrktarfélagi. Verkin eru unnin úr ull og leir.Sýningin er í Gallerí Listaseli í nýja miðbænum en Ás styrktarfélag býður upp á vinnu og virkni fyrir rúmlega 230 manns í mismunandi starfshlutföllum. Á sýningunni sýna aðeins nokkrir listamenn verk sín. Leiðbeinandi þeirra er Þórey Gylfadóttir.„Sýningin byggist á því að enginn getur allt og allir geta eitthvað. Þannig að við höfum mörg tækifæri til að koma mörgu að í sömu hlutunum og vinnum þannig í sameiningu að þessum stórkostlegu listaverkum,” segir Þórey og bætir við. „Ég er mikið hérna fyrir austan og mér finnst þetta æðislegt gallerí".Sýningin er sölusýning og Þórey hefur meira en nóg að gera við að koma með fleiri og fleiri
Fatlaðir listamenn sýna verk sín í miðbæ Selfoss

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar