Greiningum á covid-19 fjölgaði í fyrstu viku nóvembermánaðar og hafa ekki verið fleiri síðan í júlí í fyrra. Þrjátíu og tveir greindust með kórónuveiruna, samkvæmt mælaborði landlæknis, af þeim tengdist tæplega helmingur hópsýkingu sem kom upp á einni deild Landspítalans. Að sögn embættis landlæknis greindust ellefu á bráðamóttökum, sem gefi til kynna að covid-19 hafi náð meiri útbreiðslu í samfélaginu. Inflúensutilfellum fjölgaði einnig líkt og þeim sem lágu á Landspítala með öndunarfærasýkingu, en af þeim voru flestir með covid eða inflúensu.