Maður sem varð valdur að banaslysi ungur að árum vonast til þess að reynsla hans verði til þess að fólk taki ekki áhættu í umferðinni. Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag.Áherslan í ár er á unga ökumenn. Samkvæmt Samgöngustofu hefur fjórðungur landsmanna misst einhvern nákominn í umferðarslysi. Hraðakstur ungmenna er helsta orsök banaslysa ungs fólks.Í gögnum lögreglu eru merki um aukna áhættuhegðun í þessum hópi. Innviðaráðherra segir stjórnvöld ætla að bregðast við þeirri þróun meðal annars með breytingu á umferðarlögum og fræðsluátaki.Haraldur Már Haraldsson flutti ávarp við athöfn í tilefni dagsins. Hann sagði reynslusögu sína um hvernig hann hefði ungur að árum valdið banaslysi æskuvinar síns sökum hraðaksturs. Haraldur sagði mikilvægt að fólk hefði í huga,