Ekki er búið að boða til nýs fundar í kjaradeilu flugmanna og Icelandair. Nýlega varð bakslag í viðræðunum en Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, segir í samtali við fréttastofu að deiluaðilar hafi síðast fundað í síðustu viku. Verkáætlunin sem unnið var eftir um tíma sé runnin út og skilaði hún alls konar árangri.