„Leiðsögumaður“ reyndi að flýja lögreglu út um bakdyr veitingastaðar

Lögregla handtók þrjá kínverska ríkisborgara á veitingastað sem býður upp á asíska matseld á Geirsgötu í Reykjavík á fimmtudaginn. Lögregla hefur til skoðunar hvort tilefni sé til að vísa tveimur þeirra af landi brott. Ákvörðunin sé ávallt í höndum Útlendingastofnunar. Sá þriðji er með ríkari tengsl við landið og sætir því ekki slíkri skoðun.Einn þeirra reyndi að flýja út um bakdyr veitingastaðarins er lögreglu bar að garði en komst ekki langt.Þetta staðfestir Jón Þór Karlsson lögreglufulltrúi. Hann segir einstaklingana alla vera með dvalarleyfi í Evrópu en ekki hafa verið með tilskilin leyfi sem leiðsögumenn, líkt og þeir gáfu sig út fyrir að vera. Með þeim var hópur erlendra ríkisborgara sem var á ferðalagi um Ísland. VEITINGASTAÐURINN EKKI TIL SÉRSTAKRAR RANNSÓKNAR Fréttastofu barst
„Leiðsögumaður“ reyndi að flýja lögreglu út um bakdyr veitingastaðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar