Góðkunningjar lögreglu réðust á mann í miðborginni

Tveir menn eru grunaðir um að hafa ráðist á einn í miðborg Reykjavíkur á ellefta tímanum í morgun. Lögreglubíll á ferli í miðborginni. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már EiðssonLögregla hefur ítrekað þurft að hafa afskipti af árásarmönnunum, sem voru handteknir og vistaðir í fangaklefa þar sem þeir dvelja enn. Sá sem fyrir varð kallaði sjálfur eftir aðstoð lögreglu og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Hann hlaut skrámur og rispur á andliti og höfði eftir hnefahögg. Árásin er ekki metin sem alvarleg.
Góðkunningjar lögreglu réðust á mann í miðborginni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar