Ungur karlmaður var handtekinn fyrir utan World Class í Laugum í gær að sögn Björns Leifssonar, eiganda líkamsræktarstöðvarinnar. Vísir greindi fyrst frá.Björn segir starfsmanninn hafa hlotið heilahristing og hálsríg eftir að maðurinn sló hana niður. Hann hafi verið í annarlegu ástandi og augljóslega undir áhrifum.„Þetta er bara svakalegt,“ segir Björn.Maðurinn hafi reynt að gefa upp ranga kennitölu í afgreiðslu til að smygla kærustu sinni inn á stöðina. Starfsmenn hafi reynt að vísa honum á dyr en hann brugðist illa við og slegið starfsmanninn niður.Hann segir lögreglu hafa handtekið manninn fyrir utan stöðina og fært hann burt í járnum. Hann fái aldrei að koma inn fyrir dyr World Class aftur. Björn segir að nýlega hafi verið tekið á öryggismálum í líkamsræktarstöðinni. Yfirleitt sé örygg