Laugardalslaug lokuð á meðan dróna er flogið yfir

Laugardalslaug er lokað til klukkan 14 í dag á meðan unnið er að þrívíddarmyndatöku af lauginni. Myndatökunni er ætlað að gefa nákvæma mynd af ástandi laugarinnar og skipuleggja viðhald með markvissum hætti.Drífa Magnúsdóttir forstöðukona Laugardalslaugar segir að þetta sé liður í verkefni borgarinnar sem nær til fleiri mannvirkja sundlauga Reykjavíkur.Vegna persónuverndarsjónarmiða hafi verið einfaldast að loka lauginni á meðan. Það sama hafi verið gert í Breiðholtslaug í gær.Hún segir þetta almennt verkefni hjá borginni en ekki einsdæmi hjá Laugardalslaug. Stúkan við laugina sé ekki þarna undir enda sé búið að skoða ástand hennar. Til stendur að rífa stóran hluta hennar. Drífa segir ekki liggja fyrir hvenær framkvæmdir við stúkuna eigi að hefjast. Málið sé hjá borgarráði.
Laugardalslaug lokuð á meðan dróna er flogið yfir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar