Íslendingar hafa löngum verið viljugir að tileinka sér nýjungar og Internetið var engin undantekning frá því þegar það kom fram á sjónarsviðið. Fljótlega varð algengt að tölva og nettenging væri á nær hverju heimili.Sigurður G. Valgeirsson, þáttastjórnandi í Dagsljósi, spurði Sykurmolann Einar Örn Benediktsson að því í þættinum 1995 hvort netið væri tískubylgja eins og fótanuddstæki, væri „fótanuddstæki samtímans“. Einar Örn vildi ekki taka undir það heldur sá ýmis tækifæri í netinu.Truflanir hjá Microsoft um allan heim í lok vinnuvikunnar sýndu svo um munaði hvað fólk er fljótt að venjast og taka því sem sjálfsögðum hlut, til dæmis að senda tölvupóst. Manst þú eftir því þegar netið var nýtt fyrirbæri?Gísli Marteinn Baldursson greindi í fréttum í september 1997 frá nýjunginni Internet Expl