Yfirvöld í Eistlandi saka Rússa um að hafa gert tilraun til að kveikja í drónaverksmiðju fyrirtækisins Threod Systems sem framleiðir langdræga njósna- og árásardróna. Utanríkisráðherrann Margus Tsahkna segir í færslu á samfélagsmiðlinum X að öllum leiðum yfir landamærin verði lokað 1. desember.Hann rökstyður lokunina með því að sterkar vísbendingar séu um að leyniþjónusta Rússlandshers, GRU, hafi fyrirskipað skemmdarverk fyrirtækinu. Ráðherrann segir að Rússar verði að skilja að fjandsamlegum aðgerðum gegn Eistlandi fylgi afleiðingar. Ekki verði litið fram hjá tilraunum til að ógna eða grafa undan öryggi landsins.Eistneski ríkismiðillinn ERR greinir frá því að í gærmorgun hafi verið brotist inn í höfuðstöðvar fyrirtækisins og tilraun gerð til íkveikju með því að hella niður eldfimum vökva.