Aldir eru undir í Holts sögu eftir Óskar Guðmundsson sem út kom á dögunum. Þar er fjallað um Holt undir Eyjafjöllum, mektarbýli og prestssetur í óratíma. Frumkvæði að því að sagan var skráð átti sr. Halldór Gunnarsson sem lengi var prestur í Holti og leitaði hann til Óskars um verkefnið.