Kalt og bjart en stöku él vestantil

Heldur kalt er á landinu öllu og því ágætt að klæða sig vel hyggi fólk á útiveru þennan sunnudaginn. Á helstu spásvæðum Veðurstofu Íslands má sjá frosttölur allt niður sjö gráður.Í hugleiðingum veðurfræðings segir að dálítill hæðarhryggur verði yfir landinu í dag með björtu og köldu veðri. Búast má við stöku éljum vestast og um landið norðaustanvert. Í veðurspánni segir að búast megi við stinningskalda, allhvössum vindi eða hvassviðri austast í fyrstu en annars blása mun hægari vindar um landið. Síðdegis snýst til fremur hægrar breytilegrar áttar og bjartviðri með köflum, él vestast og úrkomuminna norðaustantil. Áfram verður kalt á morgun, mánudag, frost getur farið niður í tólf gráður með hægum vindi og björtu veðri en áfram líkur á dálitlum éljum vestast fyrri partinn en austan kalda og
Kalt og bjart en stöku él vestantil

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar