Vill breyta umferðarlögum til að sporna við hraðakstri

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag. Tólf hafa látið lífið í umferðarslysum það sem af er ári. Minningarathafnir voru haldnar víða um land í tilefni dagsins. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vill breyta umferðarlögum til að sporna við hraðakstri. Hann ávarpaði viðstadda við minningarathöfn í Fossvogi. AUKIN FRÆÐSLA Í FRAMHALDSSKÓLUM OG BREYTINGAR Á UMFERÐARLÖGUM „Eins og ég greindi frá í tölu minni þá er rannsóknarnefnd samgönguslysa að fara í framhaldsskóla í fræðsluátak og Samgöngustofa líka og þar er markmiðið að ná til ungra ökumanna,“ segir Eyjólfur.Þá verða veigamiklar breytingar á umferðarlögum kynntar í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum.„Þar sem ætlunin er að ná frekar utan um þennan málaflokk, bæði götukappakstur, hættulega hegðun í umferðinni of hraðan a
Vill breyta umferðarlögum til að sporna við hraðakstri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar