Vilja selja Gagnaveitu Hornafjarðar

Gagnaveita Hornafjarðar hefur verið sett á sölu. Sveitarfélagið hefur átt og rekið fjarskiptafyrirtækið um árabil, en sveitarstjórinn telur það þjóna íbúum betur að það komist í einkaeigu.„Þetta er svolítið sérhæfð starfsemi, sem krefst þekkingar og svona ýmislegs sem sveitarfélagið hefur ekki yfir að ráða. Og það er kominn tími á ýmsa þætti sem þarf að uppfæra og við töldum bara farsælla fyrir íbúa og notendur að aðrir tækju við keflinu núna“, segir Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri á Hornafirði.Gagnaveitan rekur stofn- og dreifikerfi sem teygir sig yfir um 90 kílómetra og rekur ljósleiðarakerfi í dreifbýlinu í Öræfum, Suðursveit, Mýrum og Nesjum - og á tengingar inn á 200 heimili, auk kerfis milli stofnana sveitarfélagsins.Fleiri sveitarfélög hafa farið þessa leið á undanförnum árum.Sv
Vilja selja Gagnaveitu Hornafjarðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar