Formenn björgunarsveita í uppsveitum Árnessýslu eru uggandi yfir því að fyrirhugað náttúru- og innviðagjald á ferðamenn við Gullfoss gæti beint fleiri ferðamönnum að austurbakka Hvítár þar sem öryggisinnviðir hafa ekki enn verið byggðir upp.Landið sé í einkaeigu og aðstaða til að taka á móti miklum fjölda ferðamanna ekki fyrir hendi.Til stendur að leggja gjaldið á þá erlendu ferðamenn sem fara Gullna hringinn, á Þingvelli, Gullfoss og Geysi frá og með fyrsta maí á næsta ári. Kristinn Bjarnason, formaður Björgunarsveitar Biskupstungna, segir lítið öryggi á austurbakkanum.„Þar eru í rauninni engir merktir göngustígar eða neinar varnargirðingar eða neitt sem aftrar fólki frá því að fara út á brún.“ Aðspurður segir Kristinn að ákjósanlegast væri að stjórnvöld frestuðu gjaldtöku.„Það væri auðvi