Flest bendir til þess að það sé erfiðara að fá vinnu í dag en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt samantekt BHM var atvinnuleysi 5,9 prósent í haust, rúmu einu prósentustigi hærra en á sama tíma í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar.Hlutfall fólks sem vantar vinnu eða vill vinna meira var 14 prósent í september og hefur ekki verið jafn hátt síðan vorið 2021 á tímum kórónuveirufaraldursins.Um 34 þúsund manns vantaði vinnu eða meiri vinnu, samanborið við tæplega 29 þúsund árið á undan. Laus störf á öðrum ársfjórðungi þessa árs voru rúmlega 3500 – rúmum þriðjungi færri en á sama tíma í fyrra. „ÁKVEÐIN KÓLNUNARMERKI Á VINNUMARKAÐI“ „Það eru ákveðin kólnunarmerki á vinnumarkaði,“ segir Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM.„Hagstofan heldur utan um mælikvarða sem kallast slaki á vinnumarkaði og