Guðmundur Jóhannsson tæknispekúlant segir hug sinn allan hjá kerfisstjóra Microsoft sem hafi eflaust bara verið að reyna að vinna vinnuna sína þegar allt fór í skrúfuna í gær. Það geti reynst erfitt að vinda ofan af svona löguðu í svo stóru kerfi.„Microsoft tók sérstaklega fram að þetta væri ekki árás, ekki eitthvað sem tengist gervigreindarerindrekum eða einhverju svoleiðis,“ segir Guðmundur.Guðmundur og Bára Hlynsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur voru gestir í Vikulokunum á Rás 2 í dag og ræddu tæknivandræði vikunnar.Alþjóðastjórnmálafræðingur segir bilun hjá Microsoft áminningu fyrir fyrirtæki og stofnanir um að vera með viðbragðsáætlanir fyrir ómissandi kerfi. Tæknispekúlant segir stafrænt fullveldi flókið en ekki endilega ómögulegt.Víðtækar truflanir urðu í forritum Microsoft um heim