| 20:56 | Enginn í gæsluvarðahaldi vegna kannabisræktunar í Reykholti Einn var handtekinn í tengslum við það þegar lögregla lagði hald á tæplega 200 kannabisplöntur í Reykholti í Bláskógabyggð um helgina.„Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku. Málið er í hefðbundnu ferli og rannsókn,“ segir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Hann vill ekki gefa upp kyn þess sem handtekinn var. Þá vill hann heldur ekki gefa upp fjölda sakborninga í málinu.Lögregla lagði auk kannabisplantnanna hald á búnað til ræktunar og önnur meint fíkniefni en ræktunin er með þeim umfangsmestu á Suðurlandi síðustu ár.Samkvæmt heimildum fréttastofu grunar lögreglu að þeir sem stóðu að baki kannabisræktuninni hafi einnig staðið að tveimur öðrum slíkum ræktunum sem voru stöðvaðar á suðvesturhorninu nýlega. Talið er að málin tengist skipulagðri brotastarfsemi. | |
| 20:38 | Hvað kostar að leigja sundskýlu? Verð á leigu sundskýlna er mismunandi eftir því hvaða sundlaug þú ferð í. Hjá sumum er greitt fast gjald en annars staðar greiðir maður hærri upphæð og fær hluta hennar endurgreiddan þegar sundskýlunni er skilað. | |
| 20:32 | Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Kreditkortagreiðslur hjá Landsbankanum sem voru skuldfærðar 2. júlí hafa ekki enn skilað sér vegna bilunar. Það hefur áhrif á ráðstöfun kortanna. Unnið er að því að finna lausn á vandamálinu. | |
| 20:21 | Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Félagarnir Jóhann Guðmundsson og Aron Þór Leifsson ætla að synda frá Vestmannaeyjum að Suðurströnd Íslands í styrktarsundi til minningar um Bríeti Irmu, sem lést í ágúst í fyrra. Með sundinu safna þeir fé fyrir fjögurra ára dóttur hennar, Atalíu Örk. | |
| 20:12 | Búið að rífa hátt í tuttugu hús í Grindavík Flestir sem koma til Grindavíkur aka Víkurbraut. Undir húsunum sem hér sjást hægra megin liggur Stamphólsgjá, ein stærsta sprungan undir bænum. Mörg hús við götuna eru því ónýt.„Það fara öll húsin nema verkalýðshúsið og efsta húsið. Það verður breytt ásýnd hérna en sjónminnið er þannig að maður venst þessu og þetta er hluti af bænum og uppbyggingunni aftur,“ segir Jón Gunnar Margeirsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Jóns og Margeirs.Við ætlum að vera hérna og halda áfram, þá þurfum við bara að gera þetta, þó að þetta sé sárt,“ bætir hann við.Búið er að rífa á annan tug ónýtra húsa í Grindavík. Sprungufyllingar eru stærsta áskorunin fram undan að mati nýráðins bæjarstjóra og að auka leyfilegan gistináttafjölda hjá fasteignafélaginu Þórkötlu.„Í þessum húsum við Víkurbrautina þar se | |
| 20:04 | Greiðsluvandræði hjá Landsbankanum Vegna bilunar hjá Landsbankanum hafa greiðslur sem skuldfærðar voru fyrir kreditkortum í gær, 2. júlí, ekki enn skilað sér inn á kortin og hefur það áhrif á ráðstöfun þeirra. | |
| 20:00 | Skortur á menntuðum kennurum á landsbyggðinni gæti skýrt mun á einkunnum Fram kom í fréttum í gær að lokaeinkunnir í stærðfræði og íslensku eru jafnan mun hærri í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. „Þeir þættir sem hafa mest áhrif hafa á námsárangur er félagslegur bakgrunnur og auðvitað bara skólasókn,“ segir Magnús Þór. „Mögulega þurfum við að horfa til þess líka hvernig okkur gengur að manna skólana okkar fagfólki.“Hann bendir á að hlutfall fagmenntaðra kennara utan höfuðborgarsvæðisins og ákveðinna þéttbýliskjarna hefur í gegnum söguna verið minna.En segir þetta eitthvað um gæði námsins eða er þetta merki um einkunna verðbólgu á höfuðborgarsvæðinu? „Ég held að það sé alls ekki þannig,“ segir Magnús Þór. „Matsviðmiðin snúast um það að börnin og nemendurnir okkar fái rétta mynd og kennararnir sem meta þau eru þeir sem hitta þau alla daga og bera hag þeirra mest | |
| 20:00 | Halldór Jörgen segir Ólaf Ragnar ekki treysta þjóðinni lengur – „Hvað breyttist?“ Halldór Jörgen Olesen, ritstjóri Verðbólguvaktarinnar, hjólar í Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta í aðsendri grein á Vísi. Bendir hann á að Ólafur Ragnar hafi eitt sinn treyst þjóðinni en nú sé öldin önnur. | |
| 19:58 | Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Þeir Aron Þór Leifsson og Jóhann Guðmundsson ætla nú í júlí að synda frá Vestmannaeyjum að suðurströnd Íslands. Sundið er tileinkað minningu Bríetar Irmu Ómarsdóttur sem lést í fyrra aðeins 24 ára að aldri. | |
| 19:42 | Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Matvælastofnun breytti verklagi sínu varðandi upplýsingaöflun með hvalveiðum í morgun ábendingar frá Hvali hf. Að mati fyrirtækisins eru upplýsingar um staðsetningu veiða í eftirlitskýrslum stofnunarinnar sem geti ógnað öryggi sjómanna komist þær í hendur þriðja aðila, líkt og til áhafnar Bandero, skips sem bíður nú við Íslandsstrendur og hefur það að markmiði að stöðva hvalveiðar. | |
| 19:32 | Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu Matvælastofnun (MAST) hefur breytt verklagi sínu eftir að stofnuninni bárust ábendingar um að gögn úr eftirlitsskýrslum með veiðum Hvals hf. væri mögulega verið að nota í annarlegum tilgangi. | |
| 19:30 | Hundar rifu höfuðleðrið af sjö ára stúlku Sjö ára stúlka í Kaliforníu á fyrir höndum langan veg til bata eftir að hundar réðust á hana og rifu af henni höfuðleðrið.Á söfnunarsíðunni GoFundMe er greint frá árásinni og söfnun fyrir fjölskylduna. En stúlkan, sem heitir Patricia, varð fyrir árás þann 27. júní í bænum Corning, norðan við borgina Sacramento í norðurhluta Kaliforníu.Nokkrir hundar réðust að barninu í einu með hræðilegum afleiðingum. Höfuðleðrið rifnaði af henni og hún fékk einnig alvarlega áverka á fótleggjum. Var hún fyrst á sjúkrahús í nágrenninu en síðan flutt með sjúkraflugi á stærri spítala. | |
| 19:26 | Dauðsföllum fjölgaði um nær 40% í hitabylgju Dauðsföllum í Frakklandi og Belgíu fjölgaði mikið í hitabylgju á dögunum. Varað er við hita í Portúgal og gróðureldar geisa í Frakklandi.Í hitabylgju í Frakklandi í lok síðasta mánaðar hækkaði dánartíðni í landinu um 29 prósent. Í vikunni sem bylgjan geisaði létust 2.025 fleiri en í vikunni á undan. Í París og nágrenni voru dauðsföllin 62 prósentum fleiri á þessum tíma. Heilbrigðisráðuneyti landsins telur þetta þó mögulega vera vanmat.Skráð dauðsföll í Belgíu voru 39 prósentum fleiri en vanalega á tímabilinu 18. til 29. júní. Nærri helmingur þeirra sem létust var 85 ára eða eldri. Fram kemur í yfirlýsingu frá heilbrigðisráðuneyti Belgíu að svo mikil aukning dauðsfalla sé án fordæma í landinu.Dauðsföllum í Belgíu fjölgaði um 39 prósent í hitabylgju á dögunum. Dauðsföllin í Frakklandi voru r | |
| 19:20 | Tölvur hækka ört í verði vegna gervigreindar Tölvur hafa hækkað ört í verði síðastliðið ár og geta verið helmingi dýrari í dag en fyrir ári. Eigandi tölvuverslunar hérlendis segir söluverð á tölvum hafa hækkað á bilinu 40-50% á tímabilinu. Skýringin er snarpar verðhækkanir á tölvuíhlutum á borð við vinnsluminni, skjákort og hörðum diskum.Hækkanirnar má rekja til gervigreindarkapphlaupsins og kapps stórfyrirtækja, eins og gervigreindarfyrirtækisins OpenAI, um að festa kaup á þessum íhlutum í stórum stíl.„Það sem hratt þessu af stað var í raun og veru yfirlýsing frá OpenAI um að þeir hefðu gert samkomulag við tvo stærstu minnisframleiðendur í heimi um kaup á allt að 40% af heimsframleiðslunni í langan tíma. Það hratt af stað bylgju sem við köllum svona panic buy,“ segir Guðbjartur Nilsson, framkvæmdastjóri og meðeigandi Kísildals, í vi | |
| 19:15 | „Hver gaf SKE vald til að miðstýra atvinnulífinu?” „Ef við ætlum að vera með íslenska banka sem búa við allt annað regluverk en bankar á meginlandi Evrópu mun íslenska bankakerfið fjara út,” segir Heiðar Guðjónsson. | |
| 19:05 | Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Æsileg atburðarás fór af stað í kjölfar innbrots í apótek í vikunni. Innbrotsþjófurinn flúði á bíl með lögregluna á hælunum og keyrði meðal annars yfir göngubrú. Lögreglufulltrúi segir eftirfarir erfið verkefni sem geti skapað mikla hættu. | |
| 19:00 | Óvenju mikil mengun í Heimaey Í morgunsárið vottaði fyrir óvenju mikilli mengun við Heimaey, stafaði hún af skemmtiferðaskipinu Spirit of Discovery sem kom í morgun með farþega í skoðunarferð um Heimaey. | |
| 18:31 | Skemmtilegast að keppa í rallý Arnar Sigurðarson framkvæmdastjóri BRPEllingsen, dreifingaraðila BRP á Íslandi, er mikill bílaáhugamaður og hefur m.a. keppt í mótorsporti. | |
| 18:24 | Skylt að afhenda skýrslurnar á grundvelli upplýsingalaga Á grundvelli upplýsingalaga er Matvælastofnun skylt að afhenda eftirlitsskýrslur sínar með veiðum Hvals hf. á langreyðum. Eftir að stofnuninni bárust ábendingar um að þær fælu í sér nákvæm hnit veiðanna í morgun breytti MAST verklagi sínu.„Við brugðumst strax við og höfum breytt verklagi þannig að nákvæm staðsetning langreyðanna er ekki lengur skráð í okkar eftirliti,“ segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST. SEGIR ÖRYGGI SJÓMANNA ÓGNAÐ Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., skrifaði í pósti til Hrannar sem sendur var á fjölmiðla í dag að Hvalur hefði rökstuddan grun um að upplýsingar um staðsetningu veiðanna hefðu borist Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna.„Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf,“ skrifaði hann og sagði fyrirtækið hafa s | |
| 18:11 | Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Rod Coronado sem stýrir leiðangri skips Paul Watson samtakanna útilokar ekki að halda inn í íslenska landhelgi. Hann hafi fellt tár þegar hann sá starfsmenn Hvals leika sér með hvalshræ á dögunum. Forstjóri Hvals hf. sakar MAST um að hafa ljóstrað upp um staðsetningu hvalveiðiskipa og sett áhöfn þeirra í hættu. Við ræðum við forstjóra stofnunarinnar í beinni í kvöldfréttum. | |
| 18:01 | Þjónustustörfum fækkar þrátt fyrir HM Störfum innan veitinga- og hótelgeirans í Bandaríkjunum fækkaði um 61 þúsund í júní. | |
| 18:00 | Gunnar segir staðfest hvað raunverulega bjó að baki uppsögnunum í ráðhúsinu – Pólitíkin komin með puttana í upplýsingagjöfina Gunnar Axel Axelsson, fyrrverandi sveitarstjóri Voga, segir að nýr meirihluti í borgarstjórn ætli sér að setja fjármagn í pólitíska markaðssetningu á kostnað faglegrar upplýsingagjafar. Faglega ráðnu starfsfólki sé sagt upp en í staðin keypt þjónusta frá auglýsinga og markaðsfyrirtækjum.„Jæja, nú er líklega búið að staðfesta hvað liggur raunverulega að baki þessum ákvörðunum nýs meirihluta í Reykjavík,“ segir Gunnar í færslu á samfélagsmiðlum.Segja upp faglega ráðnu fólki | |
| 17:58 | Segja veiðar Hvals í samræmi við lög Engin trygging er fyrir því að unnt sé að tryggja tafarlausan dauða við aflífun hvala, eins og við aðrar veiðar á villtum dýrum. | |
| 17:47 | Hagar styðja við unga frumkvöðla Hagar hafa gerst bakhjarlar Ungra frumkvöðla á Íslandi um stuðning við Fyrirtækjasmiðju samtakanna. | |
| 17:40 | Umferðin byrjuð: „Reynum að fylgja fólki út úr bænum“ Þokkalegur umferðarþungi er farinn að myndast á leiðinni úr Reykjavík enda er stór ferðahelgi fram undan. | |
| 17:30 | Þurftu að aflýsa Yu-Gi-Oh móti af því að þátttakendur voru of sveittir og skítugir Spilabúð í bænum Beaverton í Oregon fyli í Bandaríkjunum þurfti að aflýsa Yu-Gi-Oh móti vegna kvartana um hreinlæti þátttakenda. Voru þeir svo sveittir og skítugir að aðrir gestir búðarinnar gátu ekki verið nálægt þeim.Fréttamiðillinn UPI greinir frá þessu.Yu-Gi-Oh er japanskt kortaspil, ekkert ósvipað og Pokemon. Líkt og í Pokemon, Magic og fleirum eru reglulega haldin Yu-Gi-Oh mót í spilabúðum út um allan heim.Það var spilabúðin Chronos Games & Gifts sem tilkynnti að öllum Yu-Gi-Oh mótum yrði aflýst í að minnsta kosti viku. | |
| 17:28 | Segir ekki þurfa mannréttindaskrifstofu til að verja mannréttindi Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir mannréttindi enn í hávegum höfð í borginni þrátt fyrir að mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð hafi verið lögð niður í síðustu viku.Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýndu í gær breytingar á ráðum borgarinnar á fundi borgarráðs og sökuðu nýjan meirihluta um blekkingar og sýndarhagræðingu.Fulltrúar Samfylkingarinnar segja kostnað við stofnun öldungarráðs vera þann sama og við mannréttindaráð, en sinna færri verkefnum.Bókunin var svohljóðandi: > Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á tillögu meirihluta borgarráðs um stofnun nýs ráðs, öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks í stað mannréttindaráðs sem fór með þau verkefni sem nýju ráði er ætlað að sinna. Kostnaður við nýtt ráð er nákvæmlega sá sami og kostnaður var við mannréttindaráð, | |
| 17:28 | Stækkun iðngarðs samþykkt eftir áfrýjun Stækkun Brockeridge Park í Gloucestershire á Englandi fær grænt ljós eftir höfnun sveitarstjórnar. | |
| 17:25 | Þriggja bíla árekstur: Tveir fjarlægðir með krana Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning þess efnis að þriggja bíla árekstur hefði orðið á Reykjanesbraut um klukkan 16 í dag. Engin slys munu hafa orðið á fólki, en fjarlægja þurfti tvo bílanna af vettvangi með kranabíl. | |
| 17:19 | Hvalur segir veiðar standast lög Veiðar á langreyðum síðustu daga hafa verið í samræmi við reglugerð um þær. Þetta segir í tilkynningu frá Hval hf. sem Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, sendi frá sér í dag. Á þriðjudag var greint frá því að Matvælastofnun hefði til rannsóknar dráp á langreyði 22. júní.Langreyðurin var skotin með fjórum sprengiskutlum og 31 mínúta leið frá því hún var fyrst skotin þangað til hún drapst.Í tilkynningu Hvals segir að á yfirstandandi vertíð hafi 10 langreyðar verið skotnar. Í öllum tilvikum hafi aðalskot og umskot hægt skilgreint marksvæði í samræmi við reglugerð nr. 895/2023. Reglugerðin kveður t.d. á um marksvæði, skotvinkil og endurskot.„Samkvæmt því sem fram hefur komið í fjölmiðlum hefur MAST til rannsóknar tilvik þegar skjóta þurfti langreyð fjórum skotum. Í þessu samhengi hefur jafnfr | |
| 17:16 | Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Útlit er fyrir ágætt veður á gjörvöllu landinu um helgina en best verður veðrið á Suðausturlandi þar sem spáð er allt að 18 stiga hita og heiðskírum himni. | |
| 16:54 | Sífellt fleiri sjóðstjórar setja þak á innlausnir Útgreiðslur úr einkalánasjóðum halda ekki í við innlausnarbeiðnir fjárfesta. | |
| 16:53 | Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut um fjögurleytið í dag. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti tvær bifreiðarnar af vettvangi með kranabíl. | |
| 16:50 | Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals Forstjóri Hvals hf. hefur sent Matvælastofnun fyrirspurn varðandi það hvort eftirlitsskýrslur varðandi hvalveiði fyrirtækisins hafi verið afhentar þriðja aðila. Hann telur aðgerðarsinna á skipinu Bandero hafa nýtt skýrslurnar sem ógni öryggi starfsmanna Hvals og geri fyrirtækinu erfitt fyrir um veiðar á gjöfulum miðum. | |
| 16:48 | Telur vinnubrögð MAST ógna öryggi sjómanna Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., segir fyrirtækið hafa rökstuddan grun um að eftirlitsskýrslur með velferð dýra við hvalveiðar hafi verið afhentar skipinu Bandero. | |
| 16:46 | Grunar MAST um að uppljóstra um staðsetningar hvalveiðiskipanna Kristján Loftsson, forstjóri og eigandi Hvals hf., óskar eftir því að Matvælastofnun upplýsi um það hverjum hún hafi afhent eftirlitsskýrslur sínar úr skipum fyrirtækisins.„Á eftirlitsskýrslunum getur að líta, eins og þér er fullkunnugt, nákvæma staðsetningu (hnit) veiddra langreyða. Út frá því er hægt að draga ályktanir um hvar skip Hvals hf. halda sig við veiðar,“ skrifar Kristján í tölvupósti til Hrannar Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra MAST.Pósturinn var einnig sendur á fjölmiðla.Kristján segir að Hvalur hf. hafi rökstuddan grun um að þessar upplýsingar hafi borist skipinu Bandero. „Ekki þarf að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógna öryggi sjómanna Hvals hf,“ skrifar hann. STEFNDU SKIPUM ANNAÐ Fyrirtækið hefði krafist þess að upplýsingar yrðu afmáðar „í ljósi yfirlýsinga skipverja á | |
| 16:42 | Neytendastofa tæklar bílastæðaöppin Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum. Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. | |
| 16:42 | Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu á gjaldskyldum bílastæðum. Fyrirtækin verða beitt stjórnvaldssektum að upphæð tvö til fjögur hundruð þúsund krónum. | |
| 16:42 | Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Fjarlægja þurfti tvo bíla af Reykjanesbraut um klukkan fjögur síðdegis eftir þriggja bíla árekstur. Þetta kemur fram í upplýsingapósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að engin slys hafi orðið á fólki en að fjarlægja þurfti tvo bíla af þremur með kranabíl. | |
| 16:30 | „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Ráðherra neytenda- og samkeppnismála segir afar mikilvægt að komast til botns í því hvernig þróunin er og hefur verið á eldsneytismarkaði. Hún kveðst ekki sjá annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki. | |
| 16:30 | Minkadrápsmálið: Náttúruverndarstofnun herjaði á Árna Loga eftir viðtal við hann í Mogganum „Ég er búinn að taka fimm minka við skrúðgarðinn og við tjarnirnar suður við Kaldbak. Það er silungur í tjörnunum og mikið fuglalíf og þar er mikið af mink.“ – Þessi orð Árna Loga Sigurbjörnssonar, meindýraeyðis í Víðihlíð í Öxarfirði, sem féllu í viðtali við Morgunblaðið þann 4. apríl árið 2024, leiddu til þess að hann var ákærður og loks dæmdur fyrir brot gegn lögum um vernd og friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. | |
| 16:20 | Leita eiganda dáins hunds Sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinna leita nú að eiganda hunds sem fannst dáinn húsafellsmegin við Langjökul. | |
| 16:15 | Minnsti grunnskóli landsins leitar að kennara Langar þig að búa þar sem kyrrðin og róin eiga heima? Í fallegri sveit í skemmtilegu samfélagi og kenna í litlum sveitaskóla? Með þessum orðum hefst auglýsing á stöðu kennara við Finnbogastaðaskóla í Nátthaganesi í Trékyllisvík.Skólinn er í Árneshreppi á Ströndum, á norðanverðum Vestfjörðum, sem er næstminnsta sveitarfélag landsins í íbúum talið samkvæmt Hagstofu Íslands. Þar búa 60 manns, þar af þrjú börn – tíu, ellefu og tólf ára.„Finnbogastaðaskóli er lítill og krúttlegur skóli með mikla sögu. Síðastliðinn vetur vorum við með tvö börn í skólanum og nú er að bætast í hópinn þannig þau verða alveg þrjú, 50% aukning milli ára á börnum, og okkur vantar einhvern frábæran kennara til þess að kenna þessum börnum,“ segir Sigrún Sverrisdóttir oddviti Árneshrepps.Á vef Hagstofu Íslands er að finn | |
| 16:02 | Vesturbæjarlaug opnar á ný Vesturbæjarlaug var opnuð klukkan 15 síðdegis. Hún hafði verið lokuð frá 23. júní vegna viðhalds.„Viðhaldsframkvæmdir hafa gengið vel. Opnun laugarinnar var þó frestað um nokkra daga til að tryggja að málning á barnalauginni hefði náð fullnægjandi þurrki áður en vatni var hleypt á hana,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.Aðallaugin er full en hefur enn ekki náð fullum hita. Gert er ráð fyrir að hún verði komin í hefðbundið hitastig á morgun.„Við opnun laugarinnar í dag verða því barnalaug, heitir pottar, kaldi potturinn, eimbað og sánur öll opin gestum. Aðallaugin verður einnig opin en ekki í réttu hitastigi.“Aðallaugin er sögð ná fullu hitastigi á morgun.RÚV / Ragnar Visage | |
| 16:01 | Te og kaffi kveður Suðurlandsbraut Kaffihúsi Te og kaffi á Suðurlandsbraut verður lokað innan tveggja vikna, eða fyrir miðjan júlímánuð. Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi, segir ákvörðunina tekna af rekstrarlegum ástæðum, en segir enga ástæðu til þess að örvænta um afdrif annarra kaffihúsa keðjunnar. | |
| 15:57 | Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan Ísland var meðal þeirra ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu (e. urgent dabate) um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. | |
| 15:47 | Tap ríkisins meira en þrefaldaðist milli ára Halli ríkissjóðs jókst verulega milli ára og að eiginfjárstaða ríkisins snerist úr því að vera jákvæð í að verða neikvæð. | |
| 15:44 | Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Héraðssaksóknari hefur ekki sett sig í samband við þá einstaklinga sem urðu fyrir því að nöfn þeirra birtust fyrir slysni í kynningarmyndbandi sem ísraelska tæknifyrirtækið Cellebrite vann þar sem fjallað var um störf embættisins. | |
| 15:36 | Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Eftir að eigandi einbýlishúss á Kársnesi í Kópavogi sótti nýverið um endurmat á brunabótamati hækkaði það um rúmar 38 milljónir króna. | |
| 15:31 | Kostnaður við loftslagsmál rúmir 86 milljarðar Kostnaður ríkissjóðs vegna verkefna sem sneru að því að draga úr losun eða aukinni kolefnisbindingu var rúmir 86,4 milljarðar á árunum 2017-2024. | |
| 15:30 | Auðveldar samvinnu í rannsóknum á skipulagðri brotastarfsemi Ísland hefur fullgilt aðra viðbótarbókun við Evrópusamninginn um gagnkvæma aðstoð í sakamálum. Fullgildingin auðveldar íslenskum stjórnvöldum og yfirvöldum annarra ríkja að vinna saman að rannsóknum og meðferð sakamála milli landa. | |
| 15:23 | Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Kristjana Þorgeirsdóttir Heiðdal hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Saffran. Kristjana hefur starfað hjá fyrirtækinu í átta ár og gegnt starfi rekstrarstjóra undanfarin ár. | |
| 15:19 | Slæmar samgöngur hafa ekki áhrif á Goslokahátíð Vestmannaeyingar halda flesta helgarviðburði allra bæjarfélaga á landinu á sumrin. Fótboltamót, Lundahlaup, Goslokahátíð og Þjóðhátíð laða að þúsundir gesta ár hvert. Mikið hökt hefur verið á samgöngum til og frá Eyjum síðan í vetur. Herjólfur bilaði og líka Baldur og dýpkun Landeyjahafnar hefur haft áhrif en þeirra virðist ekki gæta yfir sumartímann.„Veturinn var náttúrlega erfiður eins og allir vita en sumarið hefur bara gengið vel þrátt fyrir að hafi komið upp einhverjir hnökrar. Auðvitað eru skip flöskuháls, það gefur auga leið. Það eru ákveðin pláss en það gengur bara vel og það mun ganga mjög vel um helgina að ferja fólk til og frá Eyjum. Það er von á mörgum og ég held bara að fólk sé mjög spennt fyrir því að geta komið og heimsótt okkur þessa helgi,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjars | |
| 15:17 | Rýmkuð lög um þungunarrof taka gildi Þungunarrof fram að lokum tólftu viku meðgöngu varð heimilt í Færeyjum í upphafi mánaðar þegar ný lög tóku gildi. Færeyska lögþingið samþykkti lagabreytinguna í desember.Það mátti ekki tæpara standa en hún var samþykkt með eins atkvæðis mun. Sautján þingmenn voru fylgjandi en sextán andvígir.Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn mega neita að taka þátt í þungunarrofi ef það samræmist ekki trúarlegum eða siðferðislegum skoðunum þeirra. Þá á að vísa fólki til annars læknis og þetta á ekki að koma í veg fyrir að þungunarrof sé framkvæmt. ÞUNGUNARROF ÁÐUR LEYFT Í UNDANTEKNINGARTILFELLUM Málið kom ítrekað fyrir þingið á síðustu árum en fyrri lög um þungunarrof voru sett 1956.Samkvæmt þeim mátti aðeins rjúfa þungun í undantekningartilfellum – ef líf eða heilsa konu var í alvarlegri hættu, hún | |
| 15:16 | Myndir úr Breiðholti sýna hversu illa Reykjavíkurborg sinnir úthverfum: „Blasir við eitthvað annað viðhorf til umhverfis og þar af leiðandi til íbúanna“ DV barst ábending og myndir frá borgarbúa sem búsettur er í hverfi 101 í borginni, en þurfti að fara í Breiðholt. Segir viðkomandi að honum hafi krossbrugðið við í hversu mikilli niðurníðslu svæði og byggingar sem Reykjavíkurborg ber ábyrgð á eru: | |
| 15:09 | Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný Vesturbæjarlaug var opnuð á ný kl. 15.00 í dag, föstudaginn 3. júlí. Við opnun var hiti sundlaugarinnar um tólf gráður en byrjað var að láta renna í hana síðdegis í gær. Það má því velta fyrir sér hvort laugin muni fyrst og fremst draga að sjósundsfólk í dag en búist er við að laugin muni hafa náð fullum hita á morgun. | |
| 15:03 | Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Loka á kaffihúsi Te og kaffi á Suðurlandsbraut um miðjan júlímánuð. Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi, segir reksturinn aldrei hafa náð þeim hæðum sem þau hafi viljað og því fari þau nú þegar leigusamningur rennur út. | |
| 15:03 | Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Verð fyrir gistinótt eins fullorðins á tjaldsvæðum landsins hefur hækkað að meðaltali um tæp 7% en verð á rafmagni um rúm ellefu prósent. Þegar litið er á meðalverð landshluta er dýrast að tjalda á höfuðborgarsvæðinu en ódýrast á Vesturlandi. | |
| 15:01 | „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Mikael Smári Mikaelsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að ef það eigi að vera markmið að fækka komum heimilislausra á bráðamóttöku spítalans þurfi að vera til aðrar leiðir fyrir hópinn til að sækja þjónustu sem sé þeim greið. Hann segir alla eiga að geta leitað á bráðamóttökuna og starfsfólk vilji þjónusta fólk vel og hratt. | |
| 15:01 | Spá því að olían fari í 60 dali fyrir árslok Citi ráðleggur fjárfestum að nýta tímabundnar verðhækkanir á olíumarkaði til að selja. | |
| 15:00 | Arnar Þór sakar ESB já-menn um óheiðarleg vinnubrögð – Segir gagnrýni á Heimssýn tilraun til að veikja andstöðuna Arnar Þór Jónsson gagnrýnir stuðningsmenn aðildar Íslands að Evrópusambandinu í nýrri færslu á Facebook þar sem hann sakar þá um skipulagðan áróður, persónuárásir og tilraunir til að grafa undan andstæðingum ESB aðildar. Í færslunni notar Arnar Þór myndlíkingu um salami pylsu og segir stuðningsmenn aðildar sneiða málflutning sinn niður í litla bita til að gera […] Greinin Arnar Þór sakar ESB já-menn um óheiðarleg vinnubrögð – Segir gagnrýni á Heimssýn tilraun til að veikja andstöðuna birtist fyrst á Nútíminn. | |
| 14:58 | Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Ef DNA-rannsókn á fjölskyldutengslum leiðir í ljós að barn sé óskylt meintum foreldrum sem sótt hafa um dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar tekur við flókið ferli sem yfirleitt endi á því að barnið sé sent aftur til síns heimalands. | |
| 14:45 | Svona tæklaði Simmi ósáttan hlustanda í beinni: „Ég sit ekki undir að þú teljir mig lygara“ Útvarpsmennirnir Sigvaldi Kaldalóns (Svali) og Sigmar Vilhjámsson (Simmi) eru nú umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni, sem er í loftinu virka daga frá kl. 6.50-10. Á hverjum degi er símatími og dagurinn í dag var ekki öðruvísi. Svaraði Simmi undir lok þáttarins símtali frá karlmanni, sem var verulega ósáttur:„Ég ætlaði að koma með smá athugasemd. Það er frábært úrval af afleysingafólki sem hefur verið núna í sumar að undanskildum einn. Hann heitir Sigmar.“ | |
| 14:28 | Leiðtoginn borinn til grafar Íranskir leiðtogar vottuðu æðsta leiðtoga landsins, Ali Khamenei, virðingu sína í dag, en Khamenei féll í árásum Bandaríkjanna og Ísraels sem hratt af stað stríðinu í Mið-Austurlöndum í lok febrúar. Búist er við miklu fjölmenni í útför leiðtogans sem fer fram í höfuðborginni Teheran. | |
| 14:21 | Í gögnunum „birtist hinn harði sannleikur“ Hagfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, segir að rannsóknir á fjárhagsstöðu fólks eigi að byggja á gögnum úr framtölum ekki huglægu mati eða upplifun. | |
| 14:10 | Bandero ekki komist nálægt hvalveiðiskipunum Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, enn ekki hafa komist í grennd við hvalveiðiskipin tvö.Samtökin héldu því fram í færslu á samfélagsmiðlum í gær að Bandero væri nú á leiðinni á hvalamið.„Við höldum áfram að vakta skipið en það hefur ekki verið í grennd við eða ógnað hvalveiðiskipunum,“ segir Ásgeir.Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða í gær eftir að hafa legið við bryggju í nokkra daga vegna slæms veðurs.Bandero er vestan við landið fyrir utan landhelgina.Skipverjar um borð í Bandero vilja stöðva hvalveiðar við Íslandsstrendur.RÚV / Vefsíða Captain Paul Watson Foundation | |
| 14:08 | Skipið lá í tvo sólarhringa utan við Straumsvík Brasilíska súrálsskipið Koznitza lá í Straumsvík í tvo sólarhringa áður en það var dregið til hafnar. Í sjókistu undir skipinu var að finna 106 kíló af kókaíni. | |
| 13:59 | Ísland kallaði eftir brýnni umræðu um Súdan í mannréttindaráði SÞ Ísland var meðal ríkja sem kölluðu eftir brýnni umræðu um stöðu mála í Súdan í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag.Á fundinum var einblínt á héraðið Norður-Kordofan, þar sem staða mannúðarmála versnar dag frá degi sökum vaxandi ofbeldis, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.Þar segir að minnst 880 hafi fallið í drónaárásum á fyrstu fjórum mánuðum ársins og hundruð þúsunda séu innlyksa í borginni El Obeid. Þar óttast menn yfirvofandi fæðuóöryggi og voðaverk.Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað kallað eftir að öllum árásum verði hætt tafarlaust, að aðgengi mannúðaraðstoðar verði tryggt og vernd borgara og innviða sett í forgang. | |
| 13:50 | Afréttir ekki sérstakur áhættuþáttur fyrir riðu Vel sóttur fundur um riðu var haldinn í Húnaveri á dögunum. Að honum stóð alþjóðlegur rannsóknarhópur sem hefur meðal annars verið að störfum á tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum.Fremstu vísindamenn í rannsóknum á riðu kynntu niðurstöður sínar. Þar var meðal annars farið yfir helstu áhættuþætti þegar kemur að riðusmiti og hvernig megi verjast sjúkdómnum.Jörn Gethmann segir að ekki sé hægt að sjá að afréttir og sameiginlegar réttir séu áhættuþættir í riðusmiti en smithætta geti aukist eftir því sem lömb dvelja lengur inni eftir sauðburð. Þá sé einnig mikilvægt, til þess að koma í veg fyrir smit, að fjarlægja hildir (fylgju/fósturhimnu) sem fyrst og Christine Fast segir mestu smithættuna vera af líkamsvökvum eins og hildum og legvatni.Þá segir Gethmann að margvíslegar leiðir séu til þess | |
| 13:35 | Leiðandi í stafrænni þjónustu „Í landi með innan við 400 þúsund íbúa höfum við þann lúxus að geta byggt upp eitt samhæft kerfi í stað margra ósamhæfðra.“ | |
| 13:33 | Ótti við bólumyndun eykst eftir afkomuspár „Umræðan snýst í raun um hversu lengi við getum haldið áfram að sjá jákvæða afkomu,“ segir fjárfestingastjóri Nordea Asset Management. | |
| 13:30 | Ayaan Hirsi Ali varar Bretland og Vesturlönd við – Segir íslamista vilja yfirráð en ekki aðlögun Rithöfundurinn og aðgerðarsinninn Ayaan Hirsi Ali segir Vesturlönd standa frammi fyrir þróun sem hún telur að stjórnvöld og almenningur hafi vanmetið um árabil. Í viðtali við breska dagblaðið The Telegraph segir hún að íslamistar leitist ekki við að aðlagast vestrænum samfélögum heldur að umbreyta þeim og að stjórnmálamenn hafi brugðist með því að horfast ekki […] Greinin Ayaan Hirsi Ali varar Bretland og Vesturlönd við – Segir íslamista vilja yfirráð en ekki aðlögun birtist fyrst á Nútíminn. | |
| 13:30 | Heitasti dagur New York-borgar í tólf ár Hitinn í almenningsgarðinum Central Park í New York-borg í Bandaríkjunum mældist 38 gráður í dag. Hitinn í borginni hefur ekki mælst hærri síðan 18. júlí 2012. | |
| 13:27 | Engum samskiptamálum útvistað en fékk vinagreiða hjá almannatengli Borgarstjóri segir engum verkefnum upplýsingafulltrúa hafa verið útvistað eftir uppsagnir í síðustu viku. Hún hafi notið liðsinnis annars eigenda ráðgjafarskrifstofunnar Athygli, sem er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, við skrif fréttatilkynningu.Engir upplýsingafulltrúar hafi verið ráðnir aftur en samið hafi verið við tvo starfsmenn um að vinna fram að áramótum á meðan unnið sé að nýju fyrirkomulagi.Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði lögðu fram fyrirspurn á fundi borgarráðs í gær og óskuðu eftir svörum um hvernig upplýsingamálum hafi verið og verði háttað í kjölfar uppsagna á skrifstofu samskipta og viðburða í síðustu viku. EKKERT SEM GREITT VAR FYRIR Samskiptastjóra og öllum sex upplýsingafulltrúum borgarinnar var sagt upp. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir samskipt | |
| 13:26 | Flestir frá Víetnam í sameiningum Tæplega 5.900 útlendingar hafa fengið dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar á fimm ára tímabili, þ.e. frá 2021 til 2025. | |
| 13:25 | Kirkjan mótmælir stofnun lands undir baðlón á Vestfjörðum Þjóðkirkjan gerir alvarlegar athugasemdir við stofnun lóðarinnar Hvítasands innan jarðarinnar Þórustaða í Önundarfirði, þar sem félag á vegum athafnafólksins Runólfs Ágústssonar og Áslaugar Guðrúnardóttur hyggst reisa glæsileg baðlón. Lóðin er í Önundarfirði og er deilan um landamerki á svæðinu ríflega aldargömul. Dómkvaddur matsmaður hefur verið fenginn til þess að úrskurða um þessa deilu sem má rekja til ársins 1909. „Vonandi... | |
| 13:20 | Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar. | |
| 13:16 | Hitabylgjan hafði áhrif á 410 milljónir í Evrópu Yfir tveir þriðju hlutar íbúa Evrópu upplifðu yfir 35 stiga hita í hitabylgju sem gekk yfir álfuna frá 15. til 30. júní, samkvæmt greiningu AFP. | |
| 13:15 | Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um það hvernig ungt fólk hyggst láta til sín taka í einni stærstu pólitísku umræðu síðari ára. | |
| 13:15 | #129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um það hvernig ungt fólk hyggst láta til sín taka í einni stærstu pólitísku umræðu síðari ára. | |
| 13:07 | Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Bandero hefur enn ekki komist í grennd við hvalveiðibáta Hvals þrátt fyrir yfirlýsingar um að skip Paul Watson-samtakanna stefni nú harðbyri í átt að hvalamiðum. Mast hefur nú að minnsta kosti þrjú atvik til rannsóknar þar sem grunur liggur á um að ekki hafi verið staðið með réttum hætti að veiðum. | |
| 13:06 | Lónaði í tvo daga utan við Straumsvík Súrálsskipið Koznitza frá Brasilíu lónaði í tvo daga utan við Straumsvík áður en það var tekið inn til Staumsvíkurhafnar. Þetta staðfestir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnafjarðarhafna.106 kíló af kókaíni voru geymd í sjókistu skipsins.Talið er að kafari hafi gagngert verið fluttur til landsins til þess að sækja fíkniefnin. Ekki er útilokað að á þeim tíma sem skipið lónaði utan við Straumsvík hafi kafari sótt efnin úr sjókistu skipsins. BIÐU EFTIR DRÁTTARBÁT Lúðvík segir ekkert óeðliegt við það að skip bíði á krók í nokkra daga.„Það þarf að fá stóran bát til þess að taka inn stærstu skipin inn,“ segir Lúðvík.Í þá tvo daga sem skipið lónaði utan við Straumsvík var beðið eftir aðstoð dráttarbáts Faxaflóahafna, sem aðstoðar Hafnafjarðarhafnir við að taka inn stærstu skipin.Samkvæmt Lúðví | |
| 13:06 | Lá utan við Straumsvík í tvo daga Súrálsskipið Koznitza frá Brasilíu lá í tvo daga utan við Straumsvík áður en það var tekið inn til Staumsvíkurhafnar. Þetta staðfestir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnafjarðarhafna.106 kíló af kókaíni voru geymd í sjókistu skipsins.Talið er að kafari hafi gagngert verið fluttur til landsins til þess að sækja fíkniefnin. Ekki er útilokað að á þeim tíma sem skipið lónaði utan við Straumsvík hafi kafari sótt efnin úr sjókistu skipsins. BIÐU EFTIR DRÁTTARBÁT Lúðvík segir ekkert óeðliegt við það að skip bíði á krók í nokkra daga.„Það þarf að fá stóran bát til þess að taka inn stærstu skipin inn,“ segir Lúðvík.Í þá tvo daga sem skipið lá utan við Straumsvík var beðið eftir aðstoð dráttarbáts Faxaflóahafna, sem aðstoðar Hafnafjarðarhafnir við að taka inn stærstu skipin.Samkvæmt Lúðvík var mi | |
| 13:01 | Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Dauðsföllum í Frakklandi fjölgaði um tæp 30 prósent síðustu vikuna í júní, þegar fordæmalaus hitabylgja gekk yfir landið. Dauðsföllum fjölgaði um 2.025 milli vikna og um heil 62 prósent í höfuðborginni París. | |
| 13:00 | Quang Lé málið: Segir lögreglu hafa fengið skýr skilaboð frá Landsrétti – „Það er ekkert að gerast í rannsókninni“ Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður víetnamska athafnamannsins Quang Lé, fullyrðir að ekkert sé að gerast í rannsókn lögreglu á ætluðum brotum skjólstæðings hans. Quang Lé hefur sætt farbanni síðan sumarið 2024 vegna gruns um mansal, skjalafals og peningaþvætti. Í nýjum farbannsúrskurði Landsréttar yfir athafnamanninum segir að brotaþolar í málinu séu 29 talsins. | |
| 12:59 | Hefja vikulegar siglingar til og frá Færeyjum Eimskip kynnir nýja siglingaleið frá Færeyjum til Evrópu. | |
| 12:54 | Sænski fjölskyldufaðirinn sem barðist fyrir lífi sínu er látinn – reyndi að stöðva slagsmál á Íslandsbryggju Sænski fjölskyldufaðirinn Christian Zedig, sem varð fyrir hrottalegri árás á stórskjásvæði á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn fyrr í vikunni, er látinn af áverkum sínum. Zedig var 32 ára gamall, tveggja barna faðir og starfandi lögreglumaður í Svíþjóð. Hann var í fríi í Kaupmannahöfn til að fylgjast með heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu þegar árásin átti sér stað. Andlát […] Greinin Sænski fjölskyldufaðirinn sem barðist fyrir lífi sínu er látinn – reyndi að stöðva slagsmál á Íslandsbryggju birtist fyrst á Nútíminn. | |
| 12:47 | Framkvæmdum á brúnni miðar vel Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru nær hálfnaðar miðað við áætlaðan verktíma þar sem enn er stefnt að því að brúin verði opnuð í október árið 2028. | |
| 12:45 | Vaxtarfélögin lækkað mest á árinu Aðeins tvö félög hafa hækkað um meira en 20% á aðalmarkaði i ár. | |
| 12:42 | Þorskastríðin dæmisaga stríðsfræðinnar Þorskastríðin eru skýrt dæmi um það hvernig veikari ríki geta knúið fram hagstæða niðurstöðu í deilum við stórveldi. | |
| 12:38 | Mesta hættan að steypubrot gætu fallið á gesti Til stendur að rífa skyggni og setusvæði stúkunnar í Laugardalnum fyrst og mögulegt er að mannvirkið víki að fullu á einhverjum tímapunkti. Heitir pottar og svæði við áhorfendastúku í Laugardalslaug verða lokuð í að minnsta kosti í hálft ár.Hætta er talin geta stafað af stúkunni, segir í nýju áhættumati Verkís sem kynnt var í gær.Mesta og bráðasta hættan, að mati Verkís, er að steypubrot gætu fallið á gesti eða starfsfólk og mögulegt burðarþolshrun. Sérstaklega ef súlur eða hnútpunktar gefa sig undan eigin þunga eða ytra álagi á borð við snjó, vind eða jarðskjálfta.Hvatt er til tafarlausra aðgerða, þar á meðal niðurrifs þar sem stúkan er verst farin. Ekki er talið að stúkan eins og hún leggur sig sé að hruni komin en afleiðingar hruns gætu verið lífshættulegar og valdið fjöldaslysi, segir | |
| 12:38 | Sjálfbær mönnun í heilbrigðisþjónustu Heilbrigðisráðuneytið hefur birt tveggja ára aðgerðaráætlun um framkvæmd mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. | |
| 12:30 | Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Kaupendur og seljendur fíkniefna á Íslandi hafa litlar áhyggjur af lögreglunni og efnin eru auglýst á netinu líkt og hverjar aðrar vörur á markaði, með magnafslætti og tilboðum. | |
| 12:21 | Heilbrigðiseftirlitið innkallar Bapao beef Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar Tjendrawasih Bapao beef frá framleiðandanum Dai Phat. | |
| 12:21 | Innkalla Bapao beef Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar Tjendrawasih Bapao beef frá framleiðandanum Dai Phat. | |
| 12:19 | Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hafði boðið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrrverandi utanríkisráðherra til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Nú liggur fyrir að Þorgerður kemur því ekki við að mæta. | |
| 12:14 | Quang Le fer ekki langt Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi farbann yfir Quang Lé til föstudagsins 25. september næstkomandi. Quang er sakborningur í máli þar sem meðal annars er til rannsóknar gífurlega umfangsmikið mansal. | |
| 12:12 | Veiking réttarríkisins sögð skipta fjárfesta máli „Við sitjum föst í því sem virðist vera kerfislæg þróun í átt að veikari leikreglum,“ segir fyrrum greinandi hjá Citi. | |
| 12:12 | Loka vegi yfir Kjöl eftir að rúta festist í aurbleytu Rúta hefur setið föst í aur á Kjalvegi frá í gær. Hálendisvegir eru margir blautir eftir vætutíð síðustu daga.Vegagerðin hefur bannað allan akstur yfir Kjöl frá Hveravöllum og að Kerlingarfjallavegi. Þar situr hópferðabíll fastur með framendann ofan í forarpytti og hefur ekki haggast síðan síðdegis í gær.Það tókst ekki að draga rútuna burt með hálendisjeppum og öðrum stærri bílum í gær en Vegagerðin hefur nú komið stórvirkum vinnuvélum á staðinn. Þeir benda fólki sem ætlar þar um að fylgjast með upplýsingum á umferðin.is, sem verði uppfærðar um leið og leiðin verður opnuð. ENN MJÖG BLAUTT YFIR HÁLENDIÐ AUSTAN TIL Vegurinn utan þessa stutta kafla í ágætis standi, að sögn Vegagerðarinnar, þannig að allt kapp verður lagt á að draga rútuna burt og laga veginn, svo hægt verið að hleypa umfer | |
| 12:00 | Jón Pétur Zimsen segir nýja umræðu um einkunnir staðfesta gagnrýni sem kom fram árið 2019 Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir nýlega umfjöllun um einkunnagjöf í grunnskólum sýna að skortur á samræmi í íslenska skólakerfinu hafi legið fyrir árum saman. Tilefni færslu hans er frétt um að árið 2019 hafi foreldrar við Grunnskóla Seltjarnarness mótmælt einkunnagjöf skólans og talið hana gefa skakka mynd af námsárangri nemenda. Nú, sjö árum síðar, […] Greinin Jón Pétur Zimsen segir nýja umræðu um einkunnir staðfesta gagnrýni sem kom fram árið 2019 birtist fyrst á Nútíminn. |