Fjölskylda Elísu Steinunnar Jónsdóttur ákvað fyrir fjórum árum að setja í framleiðslu leikfang sem þau öll þekktu vel úr sinni æsku. Leikfang sem Elísa Steinunn hannaði fyrir börn sín. Leikfangið kom loks í verslanir í vor en Kári G. Schram, sonur hennar, segir ánægjulegt hversu vel leikfanginu hafi verið tekið. Fjölskyldan skoði nú að setja fleiri hugmyndir hennar í framleiðslu.