Til þess að unnt sé að styrkja og styðja við íslenskuna þurfa allir að leggjast á eitt enda lifir hún ekki sjálfkrafa af. Gervigreind er ný áskorun sem getur haft áhrif á þróun tungumálsins. Þetta segir Linda Heimisdóttir framkvæmdastjóri Miðeindar. Dagur íslenskrar tungu er á morgun og hún hvetur fólk til að íhuga stöðu tungumálsins í tilefni dagsins.