| 16:27 | Kína og Bandaríkin hafi náð framförum 36 Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann og Xi Jinping Kínaforseti hafi náð árangri fyrir Bandaríkin og Kína í samtölum sín á milli, en kínverski forsetinn lauk opinberri heimsókn sinni til Washington í dag. | |
| 11:47 | Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka 52 Sérstök þingnefnd um kosningar meinaði í vikunni stjórnmálaflokkum landsins sem leiddir eru af Aröbum að bjóða fram í þingkosningum næsta mánaðar. Fastlega er búist við því að hæstiréttur Ísrael muni ógilda ákvörðun nefndarinnar, sem er nánast eingöngu skipuð þingmönnum. | |
| 10:41 | Milei lét Sameinuðu þjóðirnar heyra það 35 Diplómatar og blaðamenn biðu spenntir eftir að heyra ávarp Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á allsherjarþingi SÞ fyrr í vikunni. | |
| 09:20 | Segir Trump hafa tekið lokaákvörðun 64 Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi tjáð sér að hann myndi leyfa Úkraínu að framleiða háþróaðar Patriot-loftvarnaeldflaugar, eftir að óvissa hafði verið uppi um málið. | |
| 09:02 | Holmes flutt á áfangaheimili 100 Elizabeth Holmes, stofnandi fallna heilbrigðisfyrirtækisins Theranos sem olli einu mesta fjaðrafoki Kísildals, verður flutt úr lágmarksöryggisfangelsi á áfangaheimili í ágúst á næsta ári. | |
| 09:00 | Setja takmarkanir á fjölda erlendra nemenda í bekk 55 Stjórnvöld á Ítalíu hafa bannað búrkur og níkab í skólum landsins. Þá má hlutfall nemenda sem ekki eru með ítalskan ríkisborgararétt eða tala litla ítölsku í bekk ekki vera hærra en þrjátíu prósent. | |
| 08:01 | Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin 35 Umfangsmiklar framkvæmdir á lóð Vladimírs Pútín í Sochi í suðurhluta Rússlands virðast vera að klárast. Lúxushús forsetans þar kallast Bocharov Ruchey og var jafnað við jörðu árið 2024 en nú virðist sem enn stærra hús hafi risið þar í staðinn. Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkinu og unnin af manni sem tengist vini Pútíns persónulega. | |
| 07:25 | Frægt fólk meðal handtekinna í New York 65 Yfir eitt hundrað voru handteknir á fjölmennum mótmælum í New York í gær í tengslum við ræðu Benjamins Netanyahu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þekktir einstaklingar voru á meðal þeirra sem handteknir voru. | |
| 06:33 | „Höfum aldrei átt betra samband“ 50 Donald Trump Bandaríkjaforseti bauð Xi Jinping, forseta Kína, til veglegrar kvöldverðarveislu í Hvíta húsinu í gær þar sem báðir leiðtogar lofuðu nýtt og betra samband ríkjanna. Á sama tíma söfnuðust mótmælendur saman fyrir utan hlið Hvíta hússins og voru nokkrir þeirra handteknir. | |
| 05:21 | Mikið um dýrðir en óvíst um innihald 36 Donald Trump Bandaríkjaforseti stóð fyrir hátíðarkvöldverði til heiðurs Xi Jinping forseta Kína og eiginkonu hans, Peng Liyuan, í gærkvöld. Bandaríkjaforseti sagði af því tilefni að forsetarnir væru meðvitaðir um að þeir væru fulltrúar ólíkra hagkerfa en tengslin milli þjóðanna væru enn til staðar.Xi hvatti til þess að þjóðirnar héldu áfram að vera í sátt og samlyndi og sagði að Kína og Bandaríkin yrðu að haga sér eins og ábyrg stórveldi.Trump gaf Xi styttu af skallaerni sem er tákn Bandaríkjanna. ÓLJÓST HVORT SAMKOMULAG HAFI NÁÐST UM DEILUEFNI Ekki er ljóst hvað muni koma út úr heimsókn Kínaforseta til Bandaríkjanna. Greinendur segja að heimsóknin hafi snúist meira um sjónarspil en innihald, en móttökurnar og hátíðarbragurinn dragi aðeins úr spennu milli þjóðanna, í það minnsta á yfirb |
| 23:45 | Vill að stríðinu við Bandaríkin linni 61 Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, ræddi stríð lands síns við Bandaríkin við bandarísku fréttastofuna Fox News fyrr í kvöld. | |
| 22:37 | Hollywood-stjörnur handteknar á mótmælum gegn Netanjahú 81 Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hélt ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld.Framferði Ísraels á Gaza hefur verið mótmælt í New York í dag. Því var líka mótmælt í þingsalnum þegar fjöldi fulltrúa gekk út á sömu stundu og Netanjahú gekk í ræðustól. > „Ef fleiri siðferðislegar bleyður eiga eftir að fara úr salnum bið ég ykkur að fara núna.“ Netanjahú nýtti ræðuna til að gagnrýna andstæðinga sína – og bandamenn. Hann var harðorður í garð Íran, sem hann kallaði morðóða einræðisstjórn, en setti einnig út á bandamennina Bretland og Frakkland sem hafa verið sígagnrýnni á Ísrael.Netanjahú vék líka máli sínu að Zohran Mamdani, borgarstjóra New York, og sakaði hann um gyðingaandúð.Mamadani hefur kallað eftir því að handtökuskipun Alþjóðlega sakamáladómstólsins á hendur Netanj | |
| 21:57 | Leikur lausum hala þrátt fyrir 174 gildrur og gervigreind 92 Einn hreysiköttur heldur náttúruverndarfólki á Orkneyjum enn við efnið eftir margra mánaða leit. | |
| 21:10 | Samkynhneigðir handteknir um nótt 97 Stundum hefur virst eins og Tyrkland væri alveg við það að stíga inn í nútímann og í það minnsta taka forystu meðal múslímaríkja í málefnum hinsegin fólks. | |
| 16:39 | Segir forsetatíð Trumps enda í nóvember 63 Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, spáir því að demókratar muni endurheimta fulltrúadeildina í þingkosningunum sem fara fram í nóvember og þá muni forsetatíð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta vera á enda „eins og við þekkjum hana“. | |
| 15:53 | „Erum slegin yfir þessari illsku“ 95 Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að Úkraínumenn séu slegnir yfir hinni fólskulegu hnífaárás sem úkraínskur maður framdi í dag þegar hann drap prest og særði fjóra aðra í kaþólsku klaustri í suðausturhluta Póllands. | |
| 15:47 | AfD mælist langstærstur flokka í Þýskalandi 69 Hægriflokkurinn AfD mælist nú langstærsti flokkur Þýskalands í skoðanakönnunum. | |
| 15:33 | Hundur Ástríðar Noregsprinsessu allur 68 Norska ríkisútvarpið NRK hefur fengið staðfest frá konungsfjölskyldunni að Wilma, hundur Ástríðar Noregsprinsessu, hafi drepist fáeinum dögum eftir að prinsessan lést.Ástríður var borin til grafar í gær en hún lést aðeins tveimur dögum eftir að eldri bróðir hennar, Haraldur Noregskonungur, var jarðsunginn.Wilma, hundur Ástríðar Noregsprinsessu heitinnar, drapst aðeins nokkrum dögum eftir að prinsessan lést. Ástríður var borin til grafar í Osló í gær.Eftir því var tekið að hundinn Wilmu var hvergi að sjá í gær þegar Ástríður var jörðuð. Síðustu ár hafði hún tekið hundinn með sér nánast hvert sem hún fór.Tíkin Wilma var 12 ára en Ástríður tók hana að sér fyrir nokkrum árum. Wilma litla var chihuahua-blendingur og varð Norðmönnum kunnug, enda var Ástríður iðulega með hana í kjöltunni þegar hú | |
| 14:05 | Hópnauðguðu í gervi lögreglumanna 100 Hundruð námsmanna gengu um götur Nýju Delí á miðvikudag og mótmæltu eftir að 17 ára stúlka greindi frá því að þrír menn í gervi lögreglumanna hefðu nauðgað henni í almenningsgarði í borginni þar sem hún fagnaði afmæli sínu ásamt vini. Þrír menn hafa verið handteknir. | |
| 11:10 | Fjallið tók joðsótt og það fæddist mús 66 Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlensk-íslensku Ingu Dóru Guðmundsdóttur og Rasmus Gjeddsø Bertelsen, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við Norðurslóðaháskólann í Tromsø. Inga Dóra segir Grænlendingum létt, Rasmus er ósammála flestum sem hafa tjáð sig um samninginn og segir að í honum sé skýr takmörkun á fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Mat umsjónarmanns Heimsgluggans var að eftir digurbarkalegar yfirlýsingar og hótanir hefði fjallið tekið joðsótt og fæðst mús. MIKILL LÉTTIR Á GRÆNLANDI Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, framkvæmdastjóri hjá Air Greenland og fyrrverandi stjórnmálamaður og ritstjóri, segir að Grænlendingum sé létt eftir að samkomulagið var u |
| 23:40 | Fundu þrjár milljónir evra faldar í veggjum húss 71 Ítalska lögreglan fann yfir þrjár milljónir evra í reiðufé faldar í veggjum húss meints eiturlyfjabaróns eftir ábendingu. | |
| 23:31 | Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda 100 Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, greindi frá því í dag að gervigreindarfulltrúi sem var þróaður af OpenAI hafi hakkað sig inn á vefsíðu ástralskra stjórnvalda í júní og komist í óopinberar skrár. | |
| 23:20 | „Kýrnar þjást“ 59 „Maður finnur að dýrin, sérstaklega kýrnar, þjást. Þær eiga mjög erfitt með þennan hita.“ Miklir þurrkar og endurteknar hitabylgjur hafa sett búskap í suðvesturhluta Frakklands í erfiða stöðu og bændur óttast um fóðurbirgðir, Abel Tite, bóndi, segir hitann hafa tekið verulegan toll af nautgripunum. | |
| 22:23 | Xi fékk óvenjulegar móttökur í Washington 90 Donald Trump Bandaríkjaforseti tók persónulega á móti Xi Jinping forseta Kína á herflugvelli fyrir utan Washington þegar sá síðarnefndi lenti þar fyrir opinbera heimsókn sína til Bandaríkjanna. | |
| 14:14 | Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu 56 Tólf manns þurftu á læknisaðstoð að halda og lögregla girti af hluta af byggingum spænska þingsins eftir að piparúði dreifðist um þær í dag. Piparúðinn kom frá þingmanni Lýðflokksins sem notaði hann sem leikmun í umræðum um innflytjendamál. | |
| 13:17 | Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt 73 Embættismenn innan ríkisstjórnar Donalds Trump segja það vera „forréttindi“ fyrir fjölmiðla að fá aðgang að Hvíta húsinu. Starfsmenn CNN, MS NOW og Politico hafi brotið gegn reglum og viðmiðum um siðprýði og þess vegna hafi þeim verið meinaður aðgangur að Hvíta húsinu. | |
| 12:59 | Colosseum lokað vegna banaslyss 61 Hið forna hringleikahús Colosseum í Róm er lokað í dag vegna banaslyss sem þar varð í gærkvöldi þegar Andrea Moretti, starfsmaður sem vann við að setja upp ný ljós, hrapaði til bana við vinnu sína. | |
| 12:02 | „Látið ekki gabba ykkur“ 66 Trine Erdal héraðssaksóknari krefst tólf ára fangelsisrefsingar yfir fertugum manni fyrir framleiðslu á 74 kílógrömmum af amfetamíni á afskekktum sveitabæ í Modum í Buskerud-fylki vestan Óslóar. Verjandi fullyrðir að lögregla hafi gengið í svokallaða staðfestingargildru og ætli sér bara að ná fram sakfellingu, sama hvað. | |
| 10:28 | Fögnuður varð að fjöldamorði 63 Að minnsta kosti ellefu voru skotnir til bana þegar þrír árásarmenn ruddust inn í samkvæmi í Suður-Afríku í gærkvöldi. Þrír eru særðir en ólétt kona var meðal þeirra sem dóu í árásinni. Lögreglan segir að meðal hinna látnu séu menn sem voru þekktir af lögreglu og viðloðnir glæpastarfsemi. | |
| 07:47 | Bað Trump um „vetrarpakka“ 78 Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi. |
| 22:47 | „Looksmaxxing“-áhrifavaldur ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri 58 Bandaríski „looksmaxxing“-áhrifavaldurinn Braden Peters, sem kallar sig Clavicular, er ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri, gefa henni áfengi og byrla henni ólyfjan í kynferðislegum tilgangi.Samkvæmt ákærunni áttu meint brot sér stað í maí í fyrra.Peters neitar sök. Talsmaður hans sagði við CBS News að ákærurnar væru „rugl“. Stúlkan, sem nú er 18 ára, höfðaði einkamál gegn Peters fyrr á árinu. Hún segir hann hafa gefið sér nokkra staupa af vodka og haft samræði við hana án samþykkis á heimili foreldra hans í Cape Cod í Massachusetts.Stúlkan segist hafa verið ólögráða þegar Peters, sem er tvítugur, á að hafa brotið á henni. Hún sakar hann einnig um að hafa sprautað sig í andlitið með einhvers konar ólöglegu efni sem eigi að leysa upp fitu. BER SIG Í ANDLITIÐ MEÐ HAMRI Þetta er | |
| 16:49 | Trump: „Þetta verður frábært langtímasamband“ 60 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og leiðtogar Grænlands og Danmerkur hafa undirritað öryggissamning á milli ríkjanna. Undirritunin fór fram við athöfn sem fór fram samhliða allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. | |
| 15:57 | Netanjahú heitir að fordæma borgarstjóra New York 71 Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hét því í dag að fordæma Zohran Mamdani, borgarstjóra New York, á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. | |
| 15:36 | Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind 53 Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni. | |
| 15:23 | Lögreglumaður ákærður fyrir ítrekaðar nauðganir á börnum 87 Karlmaður á fimmtugsaldri, starfsmaður lögreglunnar í Stokkhólmi, hefur verið ákærður fyrir ítrekaðar nauðganir gegn börnum. | |
| 14:04 | Lýkur nú „skaðlegum kafla“ í farsælu samstarfi? 84 | |
| 12:50 | Höfða mál gegn OpenAI vegna skotárásar 53 Héraðsstjórn Bresku Kólumbíu í Kanada hefur höfðað mál gegn gervigreindarfyrirtækinu OpenAI vegna meintrar vanrækslu fyrirtækisins á að láta yfirvöld vita af grunsamlegri virkni í samskiptum notanda við mállíkanið ChatGPT áður en hann varð átta manns að bana í skotárás í Tumbler Ridge í febrúar. | |
| 10:48 | Vilja hertar reglur eftir lát fjórmenninga 53 Þriggja tékkneskra manna er enn saknað eftir að báti, sem þeir lögðu fjórir í haf á til veiða, hvolfdi við eyjaklasann Grip í norska fylkinu Mæri og Raumsdal á föstudaginn, um tólf kílómetra norðvestur af bænum Kristiansund. | |
| 07:37 | Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð 100 Sænsk yfirvöld rannsaka nú meint kosningasvindl eftir að kæra barst yfirvöld um í kjölfar þingkosninganna í Svíþjóð þann 13. september síðastliðinn. Frambjóðandi Vinstriflokksins er meðal annars sakaður um að hafa borgað fólki fyrir að kjósa flokkinn. | |
| 06:40 | Enn deilt um ólígarkann sem átti að fá risalán hjá Kaupþingi rétt fyrir hrun 66 Enn er óljóst hvort rússnesku ólígarkarnir Alisher Usmanov og Mikhail Friedman sleppa af lista Evrópusambandsins yfir um 3.000 einstaklinga og stofnanir sem sæta efnahagsþvingunum Evrópusambandsins vegna innrásar Rússa í Úkraínu.Fólkið og fyrirtækin á listanum sæta frystingu eigna og takmörkunum á ferðafrelsi. HART DEILT UM LISTANN Frakkar beittu sér fyrir því að fá Usmanov tekinn af listanum og yfirvöld í Lúxemborg þrýstu á að nafn Friedman hyrfi þaðan líka. Frakkar hafa borið við þjóðaröryggi en grunur leikur á að þeir vilji hlífa Usmanov til að liðka fyrir lausn fransks kaupsýslumanns sem dæmdur var í tíu ára fangelsi í Aserbaídsjan fyrr á þessu ári.Í gær virtist sem samkomulag hefði náðst um að taka þá Usmanov og Friedman af listanum en það var dregið til baka þegar leið á kvöldið. |
| 23:04 | Hætta að flytja fréttir af Trump í mótmælaskyni 75 Bandarísku fjölmiðlarnir ABC, CBS, Fox News and NBC hafa sammælst um að flytja ekki sjónvarpsfréttir frá Hvíta húsinu í mótmælaskyni eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að meina fjölmiðlunum CNN, Politico og MSNOW aðgang að Hvíta húsinu.Trump tilkynnti ákvörðun sína sem tók gildi tafarlaust á föstudaginn.Fjölmiðlarnir ABC, CBS, Fox News, NBC og CNN skiptast á að sjá um sjónvarpsútsendingar frá viðburðum Hvíta hússins. CNN átti að sjá um útsendingu á mánudaginn en gat það ekki vegna banns Trumps. Í samstöðu með CNN ætla hinir fjölmiðlarnir að hætta að senda út frá Hvíta húsinu.Í sameiginlegri yfirlýsingu skrifuðu fréttastöðvarnar fimm: „Almenningur hefur brýnna hagsmuna að gæta af því að fá nákvæmar, óháðar upplýsingar um stjórnvöld sín. Engin ríkisstjórn ætti a | |
| 22:31 | „Friðarviljinn hjá Rússum er enginn“ 60 Spenna hefur aukist milli Rússa og Evrópuríkja sem styðja Úkraínu síðustu mánuði. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, varaði við því fyrir helgi að Rússar hefðu í hyggju að ráðast með drónum og eldflaugum á bandamenn Úkraínu. Leyniþjónustugögn bendi til þess.„Raunveruleikinn er sá að á undanförnum árum hafa orðið hundruð svokallaðra „hybrid-aðgerða“ eða árása Rússa inn á evrópsk landsvæði, sem gerðist á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi,“ segir Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Úkraínu og Póllandi.Rætt var við Friðrik í Kastljósþætti kvöldsins.„Í Póllandi hafa verið skemmdaverk og í Búlgaríu núna í síðustu viku var vopnageymsla sem brann. Þetta er mjög mikið og á mjög mörgum stöðum,“ segir Friðrik. RÚSSAR REYNI AÐ ÝTA UNDIR ÓSAMSTÖÐU OG DEILUR Hann segir eitt helsta vopn og tæ | |
| 22:29 | Seinkanir á flugi í Bandaríkjunum: Kapall óvart slitinn í sundur 65 Hundruðum flugferða var seinkað á stórum flugvöllum í Bandaríkjunum í dag eftir að byggingarverkamenn slitu óvart í sundur kapal sem er nauðsynlegur fyrir flugumferðarstjórn.Flug voru stöðvuð eða þeim seinkað seinni part dagsins í dag á flugvöllum í New York, Pennsylvaníu, New Jersey og Massachusetts.Fjarskiptafyrirtækið Verizon, sem á kapalinn, segist ekki bera ábyrgð á skemmdunum en að unnið sé að viðgerð eins fljótt og auðið er, að því er fram kemur í frétt BBC. Skemmdirnar á kaplinum höfðu áhrif á kerfið sem er notað til að leiðbeina flugvélum við flugtak og lendingu, að sögn samgönguyfirvalda.Alþjóðaflugvöllurinn Newark Liberty í New Jersey varð verst úti í truflunum á flugumferðarstjórn í dag en 267 brottförum seinkaði þaðan í dag. 257 flugferðum sem voru á leið til Newark var einnig | |
| 18:18 | Tóku sig saman og sniðgengu Trump 98 Fimm stærstu sjónvarpsstöðvarnar í Bandaríkjunum tóku höndum saman í dag og neituðu að flytja fréttir af Donald Trump forseta, í mótmælaskyni við ákvörðun hans um að meina þremur miðlum aðgangi að Hvíta húsinu.Trump fyrirskipaði á föstudag að CNN, MS NOW og Politico skildu ekki fá að koma inn í Hvíta húsið til að sinna störfum sínum. Þetta er enn einn kaflinn í áralangri sögu Trumps þar sem hann ræðst gegn fjölmiðlum.Í sameiginlegri yfirlýsingu sögðu ABC, CBS, CNN, Fox News og NBC að hagsmunir almennings lægju í því að fá nákvæmar og óháðar fréttir af stjórnvöldum. „Engin ríkisstjórn ætti að takmarka aðgang fréttamiðils vegna þess að hún er ósátt við fréttaflutning hans,“ sagði í yfirlýsingunni.Þau ætla ekki að sýna frá störfum Trumps í dag en meðal annars stóð til að segja frá ferð forset | |
| 17:45 | Sjónvarpsstöðvarnar sniðganga Trump 62 Stærstu sjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna gripu til óvenjulegra aðgerða í dag og hættu í raun að sjónvarpa frá störfum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Með þessu mótmæla þær ákvörðun forsetans um að meina þremur fréttamiðlum aðgang að Hvíta húsinu. | |
| 17:04 | Játar sök eftir að hafa ekið inn í hús og valdið dauða sofandi konu 62 Tvítugur maður hefur játað sök í máli sem kom upp í bænum Tilst, í úthverfi Árósa í sumar. Maðurinn ók á ofsahraða um götur bæjarins á flótta undan lögreglu. Eftirförin endaði með því að hann ók inn í lítið einbýlishús með þeim afleiðingum að kona á sjötugsaldri sem svaf í húsinu lét lífið.Í frétt DR segir að farþegar í bílnum hafi hrópað á ökumanninn að stöðva bílinn, en hann virti þá að vettugi.Hann er ákærður fyrir manndráp í umferðinni, sem er nýlegt ákvæði í dönskum hegningarlögum og á við þegar ökumaður veldur dauða með sérlega ógætilegum akstri.Engin vitni verða kölluð til og engin sönnunargögn lögð fram þar játning liggur fyrir.Ungi maðurinn ók inn í húsið þar sem konan svaf.DR / Emil Nordkvist Johansson | |
| 14:00 | Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur 65 Donald Trump bað Vólódímír Selenskí um að Úkraínumenn hættu árásum á olíuvinnslustöðvar í Rússlandi. Í símtali þeirra á milli í gær sagðist Trump hafa áhyggjur af því hvað þessar árásir væru að hafa slæm áhrif á heimsverð díselolíu. Trump sagðist vilja að rússnesk díselolía rataði á heimsmarkað svo verðið gæti lækkað. | |
| 09:05 | Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður 100 Donald Trump segir að hinn stærðarinnar sigurbogi sem hann vill reisa í höfuðborg Bandaríkjanna eigi að verða hernaðarmannvirki. Boginn eigi, að beiðni yfirmanna bandaríska hersins, að hýsa leyniskyttur og dróna og vera geymsla fyrir skotfæri. Með þessu er hann talinn vilja komast hjá lögsóknum og auðvelda sér að reisa bogann. | |
| 08:45 | Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk 69 Átökum tveggja eldri borgara um sólbekk á strönd í Grikklandi lauk með því að annar þeirra lét lífið. Sá var 82 ára að aldri en sá sem gekk heill á húfi frá baráttunni um sólbekkinn var 76 ára. | |
| 08:15 | 25 þúsund send úr landi í gegnum leynilega samninga 83 Bandaríkin hafa flutt úr landi yfir 25 þúsund manns eftir að hafa gert leynilega samninga við 35 lönd um að taka við flóttamönnum sem hafa engin tengsl þau, að sögn samtakanna Forbidden Stories. |
| 22:27 | Hágrátandi á Heathrow 100 Charles, 65 ára gamall fyrrverandi stjórnandi í bresku viðskiptalífi, stendur grátandi á Haethrow-flugvellinum í London, einn 478 Breta sem sænsk stjórnvöld hafa vísað úr landi eftir Brexit. Eigur hans rúmast í tveimur plastpokum, hann er með leiðbeiningabréf frá ræðismanni Breta í Svíþjóð, heimilislaus og án vonar. | |
| 18:33 | Óeinkennisklæddir lögreglumenn á lestarstöð í London 31 Öryggisgæsla hefur verið hert á St. Pancras-lestarstöðinni í London vegna skipulagðra farangursþjófnaða. Stöðin er fjölfarin meðal ferðamanna, þar á meðal Íslendinga, og þaðan ganga meðal annars Eurostar-lestir til meginlands Evrópu. | |
| 18:11 | Brutust inn og rændu 5,5 milljónum í rafmyntum 54 Hópur grímuklæddra innbrotsþjófa braust inn á heimili fjölskyldu í Frakklandi í nótt og neyddi fjölskylduna til þess að millifæra háar fjárhæðir í rafmyntum yfir á reikninga sína, að andvirði alls 40.000 evra yfir nóttina, sem jafngildir fimm og hálfri milljón íslenskra króna. | |
| 17:52 | Vildu losna við list sem væri Trump ekki að skapi 31 „Þú getur alveg byrjað að endursenda dót aftur til landanna sem gáfu það. Finndu út hvað þú vilt ekki og sendu það til baka eins fljótt og hægt er,“ sagði Richard Grenell, yfirmaður Kennedy-miðstöðvarinnar í Washington, í tölvupósti til Josef Palermo, sýningarstjóra safnsins, í október í fyrra.Tölvupósturinn er hluti af gögnum sem The New York Times byggir á í umfjöllun sinni um það hvernig Donald Trump Bandaríkjaforseti og stuðningsmenn hans hafa reynt að gjörbreyta Kennedy-miðstöðinni.Mikið hefur verið rætt um baráttu Trumps fyrir að kenna miðstöðina við sjálfan sig. Hann skipaði nýja stjórn yfir The John F. Kennedy Center for the Performing Arts og lét bæta sínu nafni fremst í heiti stofnunarinnar og efst í merkinguna á framhlið þess. Dómstólar hafa síðar dæmt þá nafnbreytingu ólöglega | |
| 16:19 | Allir fjórir taldir af 51 Umfangsmikil leit lögreglu, strandgæslu og björgunarsveita að fjórum erlendum ferðamönnum, sem lögðu í haf frá Averøya í norska fylkinu Mæri og Raumsdal á föstudagsmorgun, hefur engu skilað utan hvað að lík eins fjórmenninganna er fundið. | |
| 15:16 | Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts 52 Íslendingar voru ekki einir um það að lítast ekki á blikuna þegar þeir sáu landsvæði sitt sveipað bandarískum fánalitum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í byrjun mánaðar. Frakklandsforseti og Kanadamenn senda Bandaríkjaforseta væna pillu vegna kortsins. | |
| 14:23 | Maður á níræðisaldri lést eftir átök um sólbekk 50 Karlmaður á níræðisaldri lést af sárum sínum í Grikklandi í dag eftir að hafa lent í slagsmálum um sólbekk á strandstaðnum Vouliagmeni, skammt frá höfuðborginni Aþenu. | |
| 13:06 | „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ 35 Forsætisráðherra Danmerkur gefur ekkert upp um innihald samkomulags við Bandaríkin um framtíð Grænlands en segir samkomulagið engu að síður gott. Sérfræðingar við háskóla í Kína setja samkomulagið í samhengi við komandi þingkosningar í Bandaríkjunum og fyrirhugaða heimsókn forseta Kína til Bandaríkjanna síðar í vikunni. | |
| 10:49 | Getur breytt lífi fólks að bregðast rétt við „já“ 34 Talið er að minnsta kosti 20.000 tilkynningar um heimilisofbeldi berist mæðraverndarþjónustu á Englandi á hverju ári. | |
| 09:15 | Segja „fordæmalausa“ árás hafa verið gerða 51 Borgarstjóri Moskvu sakar Úkraínu um að hafa gert „fordæmalausa“ árás með yfir 1.600 drónum í átt að Rússlandi, með það að markmiði að trufla þingkosningar í landinu, sem fara nú fram í fyrsta skipti síðan innrásin hófst í Úkraínu árið 2022. |
| 23:31 | Bannið skýlaust stjórnarskrárbrot 85 Félag þeirra fréttamanna sem starfa í Hvíta húsinu í Washington (WHCA) krefst þess að Bandaríkjaforseti afturkalli án tafar aðgangsmissi þriggja fjölmiðla að blaðamannafundum þar.„Bannið er skýlaust brot á fyrsta viðauka stjórnarskrárinnar,“ segir í yfirlýsingu félagsins, sem telur hundruð fréttamanna sem flytja fréttir frá Hvíta húsinu. Samkvæmt ákvæðum viðaukans skal ríkja málfrelsi og fjölmiðlafrelsi í Bandaríkjunum.Donald Trump forseti sakar miðlana MSNOW, CNN og Politico um að skrifa og flytja falsfréttir. Blaðamenn þeirra miðla bætast í vaxandi hóp fjölmiðlafólks sem ekki fær að stíga fæti inn í Hvíta húsið.Málaferli standa enn eftir að Trump meinaði blaðamönnum Associated Press um aðgang í fyrra fyrir að neita að nefna Mexíkóflóa Ameríkuflóa. Forsetinn fyrirskipaði nýjasta bannið í | |
| 22:20 | Gætu þurft að afplána vegna brota barna sinna 74 Breskir foreldrar gætu þurft að afplána fangelsisdóma eða sjá á bak félagslegra bóta vegna afbrota barna sinna nái kerfisbreytingar vegna ungra afbrotamanna á Englandi og í Wales fram að ganga. | |
| 22:04 | Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ 63 Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að hann muni stofna „gervigreindarsveit“ og skipa „gervigreindarkeisara“ í náinni framtíð. Hann segir gervigreindina vera næstu iðnbyltingu og þvertekur fyrir það að ríkisstjórn sín muni hindra eða hefta vöxt hennar. Þau muni fylgjast grannt með þeim sem kunni að nýta tæknina í óæskilegum tilgangi og refsa þeim. | |
| 21:39 | Skutu meira að segja heimilishundinn 63 Nótt eina í júlí 2024 komust þrír grímuklæddir menn inn í íbúð í Södertälje í Svíþjóð. Þeir brutu sér ekki leið inn, þeim var hleypt inn, nokkuð sem lögreglan setti stórt spurningarmerki við í rannsókn sinni. | |
| 20:37 | Ed Sheeran snýr aftur 71 Tónlistarmaðurinn stígur á svið í kvöld. | |
| 18:27 | „Við erum öll í áfalli“ 48 Kona á fertugsaldri er látin eftir að hafa fallið tugi metra í fjallgöngu á hinu 1.329 metra háa fjalli Romsdalseggen í Mæri og Raumsdal í Noregi þar sem þau ferðafélagi hennar voru við það að ná toppi fjallsins í morgun. Ítalskur gönguhópur var samferða konunni og ferðafélaga hennar og ræddi maður úr þeim hópi við VG. | |
| 16:34 | Kínverjar í uppnámi vegna refsiaðgerða 54 Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög um umfangsmiklar nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu. | |
| 15:28 | Trump stóð við stóru orðin 100 Trump stóð við stóru orðin. | |
| 11:15 | „Kastaði honum til og frá eins og fiski“ 44 Yfirvöld í Ástralíu hafa gefið út skipun um að veiða og drepa hvítháf sem sést hefur við vesturströnd landsins, eftir að hann réðst á sundmann í gærmorgun á vinsælli strönd. Lík mannsins hefur enn ekki fundist. | |
| 08:18 | Almenningur efins: „Bless Bandaríkin, segi ég“ 61 Múte B. Egede, ráðherra utanríkismála og fyrrverandi formaður landstjórnar Grænlands, segir samkomulagið við Bandaríkin um varanleg yfirráð yfir öryggismálum landsins, endurspegla það sem stefnt var að í upphafi. |