„Manni er náttúrulega svakalega brugðið,“ segir Bjarni Vestmann sem var á veitingastað ásamt Rakel Árnadóttur, eiginkonu sinni, við torg í Kraká í Póllandi þegar skotárás hófst.Sex hið minnsta létust og á annan tug særðist í árásinni. EKKI NEMA 50 METRA FRÁ ÞAÐ SEM ÞAU SÁTU Bjarni og Rakel voru nýkomin til borgarinnar þar sem þau ætla að vera fram á þriðjudag. Það fyrsta sem þau gerðu var að ganga um gamla markaðstorgið í borginni og setjast niður á veitingastað.„Við vorum varla búin að fá matinn okkar þegar við heyrðum hvelli. Fyrst datt manni í hug að þetta gætu verið flugeldar en svo var þetta svo hratt og reglulegt að það voru eiginlega allir sem áttuðu sig á því samstundis.“Hjónin sátu utandyra á veitingastaðnum og Bjarni segir alla gesti sem sátu utandyra og þjóna hafa hlaupið inn