Tuttugu og eins árs gamall Þjóðverji er grunaður um að hafa stofnað lífi 17 ára vinkonu sinnar í hættu þegar hann yfirgaf hana í fjallgöngu á hæsta fjalli Þýskalands.Breska ríkisútvarpið segir að ungi maðurinn og stúlkan hafi lagt af stað frá dvalarstað sínum í Ehrwald í austurrísku Ölpunum árla morguns síðastliðinn sunnudag. Þau ætluðu að sjá sólarupprásina á fjallinu Zugspitze, sem liggur á landamærum Austurríkis og Þýskalands.Aðstæður voru erfiðar á fjallinu og fljótlega voru þau farin að klofa snjó. Á einhverjum tímapunkti urðu þau viðskila hvort við annað og ungi maðurinn gekk niður af fjallinu einn síns liðs. LÖGREGLA RANNSAKAR MÁLIÐ Stúlkan náði að hafa samband við neyðarlínuna og óska eftir aðstoð. Hún var í um 2.500 metra hæð yfir sjávarmáli þegar björgunarfólk náði til hennar.