Í augum Jareds Kushner er það hið eðlilegasta mál að einhverjir valdamestu stjórnmálamenn heims séu gestkomandi á heimili hans.Forsetahjónin Bill og Hillary Clinton ráku gjarnan inn nefið á æskuheimili hans í New Jersey. Og þegar hann var unglingur var hann látinn sofa niðri í kjallara svo Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, gæti gist í herbergi hans.Það er því kannski ekki að undra að Jared Kushner hafi snemma lært að stjórnmál og viðskipti þurfa alls ekki að vera tveir aðskildir heimar.Fjallað var um ævi og feril Jareds Kushner í Heimskviðum.Hann stýrir milljörðum fyrir arabískra auðkýfinga og tekur himinhátt gjald fyrir. Á sama tíma ræðir hann við þessa sömu menn um frið í heimshluta þeirra. Tengdasonur Trumps er einn sá fremsti þegar kemur að því að breyta pólitískum völdum í