Einn vinsælasti íþróttamaður Frakklands og fimmfaldur Ólympíumeistari í júdó, Teddy Riner, tilkynnti í gær að hann hygðist bjóða sig fram til forseta í forsetakosningunum sem fara fram næsta vor. Hann hefur ekki reynslu af stjórnmálastarfi en Riner segist hvorki vera hægri- né vinstrisinnaður og vilji með framboði sínu sameina fólk.Riner, hefur margoft verið valinn vinsælasti íþróttamaður Frakklands. Hann er 37 ára að aldri og fæddist í Guadeloupe í Karíbahafi.Hann sagði í sjónvarpsviðtali nýverið að hann hefði áhyggjur af upprisu öfgahægrisins í Frakklandi og fékk í kjölfarið yfir sig holskeflu af kynþáttafordómum og hatursfullum skilaboðum á netinu. Á BRATTANN AÐ SÆKJA FYRIR RINER The Guardian segir að öfgahægristjórnmálakonan Marine Le Pen leiði í skoðanakönnunum þegar rétt rúmir fim