Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju

Qeshm-eyja.RÚV-grafík / Kristrún EyjólfsdóttirBandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju úti fyrir ströndum Írans í gær. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við fjölmiðla í gær að Íranar hefðu komið upp loftvarnarkerfi á eyjunni sem Bandaríkjaher hefði eytt á 5-15 mínútum. Hann sagði árásina minniháttar.Íranskir fjölmiðlar greina frá því að Íranar hafi skotið niður bandarískan dróna. Tasnim-fréttastofan segir að tvö flugskeyti hafi lent á Qeshm-eyju, en ekki hefur verið greint frá mannfalli.Qeshm-eyja er nærri Hormússundi. Þar er íranski sjóherinn með herstöð og neðanjarðarmannvirki fyrir flugskeyti.
Bandaríkjaher gerði árásir á Qeshm-eyju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar