Donald Trump segist hafa hitt erindreka Vladimírs Pútín í Hvíta húsinu í kvöld. Hann hitti ekki úkraínska erindreka sem voru einnig á viðburði Melaníu Trump í Hvíta húsinu. Þá boðaði Trump væntanlegt samkomulag við Rússa sem snerist ekki eingöngu um Úkraínu heldur „gervalla Evrópu“.