Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur hafnað fréttum þess efnis að hann ætli að segja af sér embætti til að geta einbeitt sér að framboði til forseta Bandaríkjanna.Rubio sagði í viðtali við The New York Times að hann hefði alltaf ráðgert að vinna fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta þar til forsetatíð hans lýkur. Rubio er talinn líklegur frambjóðandi Repúblikana fyrir næstu forsetakosningar sem verða eftir tvö ár. Utanríkisráðherrann sagðist ekki vita hvaðan þessar sögusagnir kæmu.Bloomberg fréttastofan greindi frá því í gær að Rubio væri að íhuga að segja af sér embætti. Heimildir fréttastofunnar herma að hann hafi ætlað að segja af sér embætti en hafi verið beðinn um að vera áfram í ríkisstjórn. Aðstoðarutanríkisráðherrann Dylan Johnson sagði umfjöllun Bloomberg vera algjöran