Breskur maður hefur gengist við því að hafa byrlað eiginkonu sinni og nauðgað henni um árabil. Þá leyfði hann einnig öðrum mönnum að nauðga henni en auk hans hafa þrettán aðrir verið ákærðir í réttarhöldum sem standa nú yfir í Manchester. Við réttarhöldin hefur manninum, sem er á sjötugsaldri, verið líkt við „skrímsli“ en brot hans munu hafa staðið yfir í rúmlega tuttugu ár.