Donald Trump Bandaríkjaforseti viðurkenndi í fréttaþættinum 60 mínútum í gær að stefna hans um brottvísun ólöglegra innflytjenda hefði verið of harkaleg. Um var að ræða eitt af helstu stefnumálum Trumps og ríkisstjórnar hans. Játaði hann því jafnframt að þetta hefði haft áhrif á slakt gengi Repúblikana í nýafstöðnum þingkosningum og skaðað pólitískt orðspor flokksins.