Þingmenn á neðri deild þings Paragvæ ákærðu í dag Santiago Peña forseta fyrir embættisbrot nokkrum mínútum eftir að hann sagðist ætla að segja af sér. Umfangsmikil mótmæli hafa farið fram í Paragvæ undanfarna daga eftir að netbanki tengdur ríkisstjórn Peña fór á hliðina.