Ríkisstjórn Spánar hefur beðið ríkissaksóknara landsins um að rannsaka TikTok vegna barnaníðsefnis sem finna má á samfélagsmiðlinum vinsæla. Það er í kjölfar þess að rannsakendur segjast hafa fundið mikið magn slíks efnis á TikTok og að hægt hafi gengið að fá efnið fjarlægt og deilendur þess bannaða.