Fimm létust í ótengdum vinnuslysum

Fimm létust í vinnuslysum á Ítalíu í gær. Ítalska ríkisútvarpið greinir frá. Slysin tengjast ekki og áttu sér stað í héruðunum Puglia, Campania, Veneto, Piedmont og Emilia Romagna.Vinnuslysið í Puglia-héraði er níunda vinnuslysið á árinu þar sem starfsmaður deyr við störf. Ítalska verkalýðssambandið í Lecce í Puglia, segir að meðaltali sé tilkynnt um 14 vinnuslys á dag í Lecce-héraði sem er í Puglia, eða 3.589 vinnuslys á fyrstu níu mánuðum ársins.Framkvæmdastjóri sambandsins, Tommaso Moscara, segir að mikið starf sé fram undan til að tryggja að stöðlum er varða öryggi og heilsu starfsmanna sé framfylgt. Hann segir að það verði að vera á ábyrgð hvers fyrirtækis og starfsmanns að passa upp á það því það sé óásættanlegt að látast við störf.
Fimm létust í ótengdum vinnuslysum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar