Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðið Dana White, framkvæmdastjóra UFC, starf fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins, í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Socal. Hann sagði White verða einstakan fjölmiðlafulltrúa. „Dana, gerðu það, taktu við starfinu!“, skrifaði Trump. Ekki hefur verið skipað í starf fjölmiðlafulltrúa síðan Katie Zacharia var vikið úr starfi 16. október, eftir innan við viku í starfi. Umdeilt UFC-bardagakvöld var haldið við Hvíta húsið í júní. Viðburðurinn var liður í að fagna 250 ára afmæli Bandaríkjanna og áttræðisafmæli Trumps. Framkvæmdin var gagnrýnd víða fyrir að vera of dýr og ekki við hæfi þessa sögufræga staðar.Trump og White saman í Las Vegas í ágúst 2026.AP / Mark Schiefelbein